Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
sumar2015-2

Almennar fréttir - 07.04.2017

Breyttur skilatími umsókna í Varasjóð og Starfsmenntasjóð vegna páska  

Félagsmenn vinsamlega athugið að breytingar verða á greiðslum úr Varasjóði VR og Starfsmenntasjóði verslunar- og skrifstofufólks næstu tvær vikur vegna páska.

Í næstu viku verður síðasti skiladagur fyrir Varasjóð mánudagurinn 10. apríl og greitt úr sjóðnum miðvikudaginn 12. apríl. Í vikunni þar á eftir verður síðasti skiladagur þriðjudagurinn 18. apríl og greiðsla úr sjóðnum föstudaginn 21. apríl.

Síðasti skiladagur fyrir umsóknir í Starfsmenntasjóðinn verður þriðjudaginn 11. apríl og greitt úr sjóðnum miðvikudaginn 12. apríl. Í vikunni þar á eftir verður skiladagur miðvikudaginn 19. apríl og greitt úr sjóðnum föstudaginn 21. apríl.