Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
VRSkorarAVinnuveitendurFriDagurVerslunarmanna.png

Almennar fréttir - 01.08.2018

Frídagur verslunarmanna - VR skorar á atvinnurekendur

VR skorar á atvinnurekendur að gefa verslunarfólki frí á mánudaginn og láta frídag verslunarmanna standa undir nafni.

Oft hefur fólk á orði að einkennilegt sé að eina fólkið sem raunverulega þurfi að vinna á frídegi verslunarmanna sé verslunarfólk. Þetta er að sjálfsögðu ekki að öllu leyti rétt enda margar stéttir sem að leggja sitt af mörkum til samfélagsins þennan tiltekna dag, eins og aðra daga. Má þar nefna heilbrigðisstarfsfólk og lögreglumenn.

Það er þó miður að síðustu ár hafi það færst í aukana að verslanir og þjónustufyrirtæki hafi opið á frídegi verslunarmanna. Það gerir það að verkum að verslunarfólk, sem þessi dagur er sérstaklega helgaður, þarf í allt of mörgum tilvikum að standa vaktina.

Samkvæmt kjarasamningum VR er frídagur verslunarmanna stórhátíðardagur en á slíkum dögum er ekki vinnuskylda, nema um slíkt hafi verið samið sérstaklega milli launamanns og atvinnurekanda.