Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Midhusaskogur_37.jpg

Almennar fréttir - 08.12.2017

Hvert ætlar þú í sumar?

Opnað verður fyrir bókanir á orlofshúsum VR árið 2018 og fram á mitt ár 2019 sem hér segir:

Þriðjudaginn 9. janúar 2018 kl. 19.00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa 1. júní – 31. ágúst 2018 hjá þeim sem hafa ekki fengið úthlutað orlofshúsi sl. þrjú sumur. 
Fimmtudaginn 11. janúar 2018 kl. 10.00 verður opnað fyrir bókanir orlofshúsa fyrir þá sem leigðu orlofshús sumarið 2015, 2016 eða 2017.
Þiðjudaginn 16. janúar 2018 kl. 10.00 verður opnað fyrir bókanir sem ná yfir tímabilið 31. ágúst 2018 - 31. maí 2019.

Skrifstofa VR verður opin að kvöldi 9. janúar og geta þeir félagsmenn sem ekki bóka rafrænt komið til okkar. Þá verður einnig tekið við bókunum í síma.