Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_logo-2.jpg

Almennar fréttir - 15.10.2018

Kröfugerð VR samþykkt

Á fundi trúnaðarráðs VR í kvöld, 15. október 2018, var kröfugerð félagsins fyrir komandi kjarasamningaviðræður samþykkt.

Í kröfugerðinni kemur fram að markmið með gerð kjarasamninga nú verði að rétta hlut þeirra lægst launuðu og auka ráðstöfunartekjur allra félagsmanna VR. Það sé því mikilvægt að bregðast við því misræmi sem sjá má í launaþróun þeirra hæst launuðu í þjóðfélaginu sem má meðal annars rekja til ákvörðunar kjararáðs árið 2016. VR telur mikilvægt að taka sérstakt tillit til stöðu þeirra sem hafa lægstu launin og leggur því til að samið verði um krónutöluhækkun.

VR gerir kröfu um kr. 42.000 hækkun á launum frá og með 1. janúar 2019, þannig að lágmarkslaun verði þá kr. 342.000. Öll laun hækki um kr. 42.000.

VR gerir kröfu um kr. 42.000 hækkun frá og með 1. janúar 2020 þannig að lágmarkslaun verði þá kr. 384.000. Öll laun hækki um kr. 42.000 kr.

VR gerir síðan kröfu um kr. 41.000 hækkun frá og með 1. janúar 2021 þannig að lágmarkslaun verði kr. 425.000. Öll laun hækki um kr. 41.000 kr.

Þá gerir VR þá kröfu að vinnuvika félagsmanna verði stytt, án launaskerðingar í 35 stundir á viku bæði hjá skrifstofu- og verslunarfólki.

VR leggur til að stórátak verði gert í húsnæðismálum þjóðarinnar og að vegna þess verði stofnað óhagnaðardrifið húsnæðisfélag og verði fjármögnun þess tryggð í kjarasamningi.

VR gerir þá kröfu að stjórnvöld komi að gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, meðal annars með því að endurskoða persónuafslátt og tekjutengingar. Þá gera félagsmenn VR kröfu um skattleysi lægstu launa, lækkun vaxta og afnám verðtryggingar á neytendalán.

Kröfugerð VR má lesa í heild sinni í skjölunum hér að neðan.