Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Siggi og Katrín Sjóvá.jpg

Almennar fréttir - 01.06.2018

Minnum á launahækkun og orlofsuppbót

Samkvæmt kjarasamningum VR hækkuðu laun og kauptaxtar um 3% frá og með 1. maí 2018.
Launahækkunin tekur til launa fyrir maímánuð og kom því til útborgunar hjá flestum félagsmönnum í dag, 1. júní.

Orlofsuppbót kemur einnig til greiðslu í dag, 1. júní, en uppbótin er 48.000 kr. miðað við fullt starf fyrir orlofsárið sem hefst 1. maí 2018.