Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
audur_steinar_waage-2.jpg

Almennar fréttir - 13.12.2017

Mundu réttindi þín í desember!

Nú er mesta vinnutörn ársins hafin hjá starfsfólki verslana og tímabært að minna á réttindi þeirra. Í jólavertíðinni er mikilvægt að halda utan um vinnutímann, hvíldartímann, launin, frídagana, matar- og kaffitímana og síðast en ekki síst desemberuppbótina sem á að greiða í síðasta lagi 15. desember.

Hér má sjá yfirlit yfir helstu réttindi starfsmanna í verslun á þessum annatíma og reiknivél til að reikna út desemberuppbótina.