Sjúkradagpeningar

Sjúkrasjóður VR greiðir sjúkradagpeninga eftir að launatekjur falla niður ef félagsmaður VR verður óvinnufær sökum veikinda eða slysa. Dagpeningarnir eru greiddir frá þeim tíma þegar samningsbundinni eða lögboðinni launagreiðslu frá vinnuveitanda lýkur, ef óvinnufærni stendur í að minnsta kosti 12 daga og að hámarki 270 daga. Hafi félagsmaður til dæmis unnið í eitt ár hjá sama vinnuveitanda á hann inni tveggja mánaða veikindarétt. Þegar þessir tveir mánuðir eru liðnir en veikindin vara lengur snýr félagsmaðurinn sér til VR og fær greiðslur úr Sjúkrasjóði.

Almennt skal það vera skilyrði styrkja og sjúkradagpeningagreiðsla að umsækjandi komi fyrst til viðtals hjá ráðgjafa sjóðsins og að gögn hans séu skoðuð af trúnaðarlækni sjóðsins til þess að leggja mat á möguleg endurhæfingarúrræði (sjá starfsreglur Sjúkrasjóðs VR).


Athugið: félagsmenn kunna einnig að eiga rétt á
dagpeningum frá Tryggingastofnun ríkisins.


Upphæð sjúkra- og slysadagpeninga

Sjúkra- og slysadagpeningar skulu vera 80% af meðallaunum, enda komi ekki greiðsla vegna tímabundinnar örorku samkvæmt ábyrgðartryggingu, fyrir sama tímabil. Greiðslur sjúkradagpeninga skulu miðast við meðallaun bótaþega, miðað við greiðslur til félags- og sjúkrasjóðs VR, síðustu 6 mánaða áður en launagreiðslur féllu niður. Ef verulegar breytingar hafa orðið á launum viðkomandi síðustu 6 mánuði, er heimilt að meta tekjurnar sérstaklega og þá yfir lengra tímabil. Meðallaun þeirra sem greitt hafa skemur en 6 mánuði til Sjúkrasjóðs VR reiknast á eftirfarandi hátt:

  • Sá sem öðlast hefur rétt til greiðslu sjúkra- og slysadagpeninga úr sjúkrasjóði annars verkalýðsfélags innan ASÍ, öðlast rétt í Sjúkrasjóði VR eftir að greitt hefur verið í félags- og sjúkrasjóð VR í einn mánuð, enda hafi hann fram að því haft rétt hjá fyrri sjóðnum. Til að finna meðallaun viðkomandi skal miða við fjölda mánaða sem greitt hefur verið í sjúkrasjóð VR.
  • Meðallaun þeirra sem ekki hafa átt rétt hjá sjúkrasjóði annars stéttarfélags og ekki hafa greitt sem svarar lágmarksgjaldi til félags- og sjúkrasjóðs VR, skal finna með því að deila í laun á viðmiðunartímabili með 6 mánuðum, þó svo að greitt hafi verið skemur en 6 mánuði.

Dæmi um sjúkra- og slysadagpeninga

Tekjur fyrir
veikindi eða slys
  80.000
120.000
160.000
200.000

Dagpeningagreiðslur
úr Sjúkrasjóði
  64.000
  96.000
128.000
160.000

Áfengismeðferð

Sjúkrasjóður VR greiðir styrk að jafnvirði sjúkradagpeninga í allt að 120 daga vegna sjúkdóms, sem stafar af ofneyslu áfengis.