VR greiðir dánarbætur við dauðsfall fullgildra félagsmanna. Bótafjárhæðir fara eftir fjölskyldustærð og hvort viðkomandi var ennþá á vinnumarkaði.
Dánarbætur vegna þeirra sem verið er að greiða fyrir til sjóðsins við dauðsfall eru (bætur greiðast aðeins skv. einum af töluliðunum nr. 1, 2 eða 3. Til viðbótar með töluliðum nr. 2 og 3 geta komið bætur skv. tölulið nr. 4.):
- Ef hinn látni var ógiftur og lætur ekki eftir börn undir 21 árs aldri kr. 240.000
- Ef hinn látni var ógiftur og lætur eftir sig börn undir 21 árs aldri greiðist til barna sameiginlega kr. 400.000
- Ef hinn látni var giftur, greiðast bætur til maka kr. 400.000
- Ef hinn látni lætur eftir sig barn (kjör- eða fósturbarn) yngra en 21 árs greiðist vegna hvers barns kr. 800.000, þá til hvers barns eða eftir ákvörðun framvæmdastjórnar hverju sinni til þess sem hefur barn á framsæri sínu. Greiða skal barninu sjálfu greiðsluna sé það lögráða og á eigin framfæri.
Heimilt er að greiða dánarbætur vegna þeirra sem látið hafa af störfum við 67 ára aldursmark eða eru orðnir 70 ára:
- Ef hinn látni var ógiftur kr. 210.000
- Ef hinn látni var giftur kr. 350.000 Bætur greiðast aðeins skv. einum af töluliðunum nr. 1 eða 2.
Rétthafar dánarbóta
- Eftirlifandi maki.
- Börn hins látna (lögráðamenn f.h. barna undir 18 ára aldri) eða sá sem annast framfærslu barna að fullu.
- Aðrir lögerfingjar ef þeir bera kostnað af útför.
Dæmi um dánarbætur:
|
Einstaklingur, kr |
240.000 |
|
|
Eftirlifandi maki, ekkert barn, kr. |
400.000 |
|
|
Eftirlifandi maki, eitt barn kr. |
1.200.000 |
|
|
Eftirlifandi maki, þrjú börn, kr. |
2.800.000 |
|
|
Eftirlifandi maki, fimm börn, kr. |
4.400.000 |
|