Stjórn VR hefur samþykkt styrkveitingar úr Sjúkrasjóði VR til tekjulágra félagsmanna umfram almenna styrki sjóðsins. Um er að ræða sérstaka styrki fyrir félagsmenn sem hafa 240 þúsund krónur í heildartekjur á mánuði eða minna fyrir fullt starf. Til að fá styrk þarf viðkomandi að hafa verið fullgildur félagsmaður VR síðustu tólf mánuði fyrir dagsetningu umsóknar. Skilyrði fyrir greiðslu þessara styrkja er að félagsmaður leggi m.a. fram staðfestingu frá Ríkisskattstjóra um greidda staðgreiðslu síðustu 24 mánuði og launaseðil.
Styrkirnir ná til eftirfarandi:
|
a. |
Gleraugnastyrkur |
|
kr. 25.000 á 24 mánaða fresti |
|
b. |
Sjúkraþjálfun |
|
kr. 1500 í 25 skipti |
|
c. |
Sálfræðikostnaður |
|
kr. 4000 í 15 skipti |
|
d. |
Heyrnartæki |
|
kr. 100.000 á 36 mánaða fresti |
|
e. |
Tannviðgerð |
|
kr. 100.000 á ári en að hámarki 50% kostnaðar |
Kvittanir þurfa að fylgja með umsókn og mega ekki vera eldri en frá 1. janúar 2010.
Nánari upplýsingar um styrkina og hvernig nálgast má umsóknareyðublað veita sérfræðingar Sjúkrasjóðs VR í síma 510 1700.