Um Sjúkrasjóð VR

Starfandi VR félagar sem eiga við veikindi að stríða eiga rétt á greiðslum frá vinnuveitanda í tiltekinn tíma samkvæmt kjarasamningi. Ef um langvarandi veikindi er að ræða geta þeir sótt um dagpeninga úr sjúkrasjóði VR eftir að greiðsluskyldu vinnuveitanda lýkur.

Vinnuveitendur greiða 1% af launum starfsmanna í sjúkrasjóð stéttarfélags viðkomandi. Þessir fjármunir mynda Sjúkrasjóð VR en hlutverk hans er að veita félagsmönnum fjárhagsaðstoð í veikinda-, slysa og dánartilvikum, svo og í elli- og örorkutilvikum. Ennfremur er það meðal verkefna sjóðsins, að vinna að fyrirbyggjandi aðgerðum, sem snerta öryggi og heilsufar félagsmanna. Félagar í Arkitektafélagi Íslands eiga samsvarandi réttindi í sjóðnum og aðrir sjóðfélagar.