Lokaverkefnastyrkur 2005
Bryndís Ernstsdóttir hlaut lokaverkefnastyrk VR árið 2005 fyrir rannsóknarverkefni á meistarastigi við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands. Verkefni hennar miðar að því að hanna mælitæki til að meta yfirfærslu vinnutengds náms. Á myndinni má sjá Gunnar Pál Pálsson, formann VR, afhenda Bryndísi styrkinn.
Mælitæki eins og það sem Bryndís vinnur að, væri hægt að nota áður en fræðslu er komið á fót innan fyrirtækja til að meta æskilegt skipulag hennar og aðra hagnýta þætti sem gætu haft áhrif á það hvort fræðslan skilar árangri eða ekki. Dómnefndin taldi verkefnið bæði áhugavert og mikilvægt þar sem miklum fjármunum er veitt í fræðslu starfsmanna á mörgun vinnustöðum. Verkefnið er í takt við þarfir atvinnulífsins þar, segir í umsögn dómnefndar, sem fræðsla og endurmenntum verðuasífellt mikilvægari í atvinnulífinu. Leiðbeinandi verkefnisins er Sigurlína Davísðdóttir, lektor við Félagsvísindadeild Háskóla Íslands.
Styrkurinn er alls kr. 250 þúsund og er nú veittur í 5 skipti. Í fyrra hlaut styrkinn Hildur Friðriksdóttir sem var í meistaranámi við félagsvísindadeild HÍ.
Markmiðið með styrknum er að efla rannsóknir á vinnumarkaði með því að hvetja stúdenta sem eru við nám á háskólastigi til að fást við þennan málaflokk í lokaverkefni. Styrkurinn er einnig þáttur í að efla samstarf skóla og atvinnulífs. Í dómnefnd sátu dr. Stefán Ólafsson, prófessor í félags- og atvinnulífsfræði við Háskóla Íslands, Elísabet M. Andrésdóttir, alþjóðafulltrúi hjá Tækniháskóla Íslands og Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður Samskipta- og þróunarsviðs VR.
Lokaverkefnastyrkur 2004
Hildur Friðriksdóttir hlaut Lokaverkefnastyrk VR árið 2004 fyrir rannsókn um álag á einstaklinga út frá vinnuumhverfi og álagi í fjölskyldulífi m.t.t. samspils fjölskyldulífs og atvinnu. Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, veitti Hildi viðurkenninguna. æI rannsókn sinni mun Hildur leitast við að greina hvaða þættir í vinnuumhverfinu er líklegir til að tengjast vinnustreitu, hver þáttur stjórnunar er í því samhengi og hvaða tengsl eru á milli vinnustreitu og andlegrar og líkamlegrara líðanar. Einnig leggur hún áherslu á að skoða álag utan vinnu, s.s. hvað auðveldar samþættingu fjölskyldulífs og atvinnu en jafnframt hverjir árekstravaldar eru. Leiðbeinandi í verkefninu er Dr. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, félagsfræðingur hjá Vinnueftirlitinu og lektor við HÍ.
Hildur er í mastersnámi í félagsfræði við Háskóla Íslands. Þetta er fjórða árið í röð sem VR veitir 250.000 króna styrk einum nemenda á háskólastigi vegna verkefnis sem tengist vinnumarkaði á breiðum grundvelli. Markmiðið með styrknum er að efla rannsóknir á vinnumarkaði með því að hvetja stúdenta sem eru við nám á háskólastigi til að huga betur að þessum málaflokki. Lokaverkefnin geta fjallað um hvað sem er, svo lengi sem það tengist vinnumarkaði. Umsóknirnar geta því komið úr flestum deildum innan háskólanna.