Hægt er að panta orlofshús VR 36 vikur fram í tímann og gildir þá reglan fyrstur bókar, fyrstur fær. Sjá nánar um bókun orlofshúsa á netinu. Athugið að bóka verður lágmark tvo sólarhringa og hámark tíu sólarhringa í senn. Helgarnar eru leigðar í heilu lagi, frá föstudegi og fram á sunnudag.
Heimilt er að hafa gæludýr í einu húsi VR á Flúðum, húsi nr. 29 frá og með 1. júní 2010. Þetta verður til reynslu í eitt ár. Ekki er heimilt að hafa gæludýr í öðrum orlofshúsum VR. Athugið að húsin í Ölfusborgum og á Einarsstöðum eru leigð út af rekstrarfélögum viðkomandi staða.
Hér má sjá yfirlit yfir laus orlofshús næstu átta mánuði.