Kjarasamningur tryggir lágmarkskjör fyrir alla starfsmenn nema gerðir séu sérkjara- eða fyrirtækjasamningar. VR gerir heildarkjarasamninga við Samtök atvinnulífsins (SA) og Félag atvinnurekenda, (FA sem áður hét FÍS), auk fjölmargra fyrirtækja sem standa utan ofangreindra samtaka. Athugið að fram til ársins 2004 voru samningar gerðir við SV-FÍS.
Langflestir félagsmenn VR starfa samkvæmt samningi VR og SA.
Samningarnir eru birtir á pdf formi. Til að lesa samningana þarftu að hafa forritið Acrobat Reader. Efnisyfirlit birtist vinstra megin í skjalinu og þú getur flett samningnum með því að smella á kaflaheiti eða undirkafla í efnisyfirlitinu. Til að leita eftir atriðisorði smellirðu á táknið fyrir sjónauka í stikunni efst í skjalinu og skrifar orðið sem þú vilt leita eftir. Til að prenta samningana þarft þú að velja prenthnappinn á skjalinu sjálfu, ekki fara í file og síðan print.