Til að öðlast full félagsréttindi þarf að greiða mánaðarlegt félagsgjald (0,7% af heildarlaunum). Það skal ekki vera lægra en sem svarar til 30% af félagsgjaldi af byrjunarlaunum 18 ára afgreiðslufólks, samkvæmt launataxta VR, eins og þau eru á hverjum tíma. Félagsgjald tekur því breytingum í samræmi við umsamdar breytingar á launataxta VR. Þegar rætt er um lágmarksfélagsgjald er miðað við gjald samtals í eitt ár, eða undangengna 12 mánuði (sjá neðar á síðunni hvert lágmarksfélagsgjaldið er á ársgrundvelli). Félagsmenn byrja að greiða 16 ára, miðað er við afmælisdag viðkomandi.
Félagsmenn sem ekki hafa náð lágmarksfélagsgjaldi eiga rétt á aðstoð við kjaramál og réttindi í sjóðum félagsins í hlutfalli við greiðslur. Til þess að viðhalda fullgildum félagsrétti í VR þurfa félagsgjaldsgreiðslur að berast reglulega. Ef ekkert félagsgjald er greitt í þrjá mánuði samfellt fellur viðkomandi af félagsskrá. Hægt er að ná aftur fullgildingu frá þeim mánuði sem næsta félagsgjaldsgreiðsla berst, ef lágmarksfélagsgjaldi er náð undangengna 12 mánuði.
Þeir sem hætta störfum 67 ára eða eldri, og hafa verið fullgildir í samfellt 10 ár áður en þeir láta af störfum, teljast fullgildir eldri félagar til æviloka. 10 samfelld ár teljast greidd þegar skilað hefur verið iðgjöldum fyrir a.m.k. 100 mánuði á 10 ára tímabili. Allir fullgildir félagar sem náð hafa 70 ára aldri eru gjaldfríir.