Lög VR

Hér eru birt lög VR. Hægt er að smella á greinar í efnisyfirliti hér að neðan til að skoða valda grein.

1. gr. Heiti, starfssvæði
2. gr. Tilgangur
3. gr. Félagsaðild  
4. gr. Innganga í félagið 
5. gr. Réttindi og skyldur
6. gr. Úrsögn

7. gr. Brottvikning
8. gr. Heiðursfélagar - gullmerki
9. gr. Félagsgjöld
10. gr. Stjórn
11. gr. Hæfi stjórnarmanna
12. gr. Störf stjórnar 
13. gr. Stjórnarfundir
14. gr. Trúnaðarráð
15. gr. Deildir
16. gr. Trúnaðarmenn
17. gr. Samninganefnd
18. gr. Allsherjaratkvæðagreiðsla
19. gr. Kjörstjórn
20. gr. Kosning formanns, stjórnar og trúnaðarráðs
21. gr. Kjör á þing LÍV og ársfund ASÍ
22. gr. Jafnræði
23. gr. Aðalfundir
24. gr. Dagskrá aðalfundar
25. gr. Félagsfundir
26. gr. Sjóðir
27. gr. Reikningar
28. gr. Lagabreytingar
29. gr. Slit félagsins


Lög VR

1. gr. Heiti, starfssvæði

Félagið heitir VR og er stéttarfélag verslunar-, þjónustu- og skrifstofufólks. Félagssvæði þess nær yfir lögsagnarumdæmi Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar,Seltjarnarness, Mosfellsbæjar, Álftaness, Kjósahrepps,Vestmannaeyja, Húnaþings vestra, Akraness og nágrennis, Langanesbyggðar, Vopnafjarðarhrepps, Borgarfjarðarhrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Fljótsdalshéraðs, Fljótsdalshrepps, Fjarðabyggðar, Breiðdalshrepps og Djúpavogshrepps. Heimili félagsins og varnarþing er í Reykjavík. 

2. gr. Tilgangur

Tilgangur félagsins er að efla og styðja hag verslunar-, þjónustu- og skrifstofufólks á félagssvæðinu með því ;að vinna að framgangi allra þeirra mála, er verða mega til aukinna réttinda, menningar og bættra kjara launafólks í landinu.

Félagið gerir kjarasamninga fyrir félagsmenn sína og kemur fram fyrir þeirra hönd gagnvart stjórnvöldum og öðrum, að því er varðar hagsmuni félagsmanna.

3. gr. Félagsaðild

Félagið er opið öllu verslunar-, þjónustu- og skrifstofufólki.

Félagar geta þeir orðið sem starfa á starfssviði félagsins sem launþegar eða starfa sem einyrkjar á vinnumarkaði.

Einnig geta þeir félagsmenn sem hætta störfum á vinnumarkaði vegna atvinnuleysis eða örorku verið áfram félagsmenn gegn greiðslu félagsgjalds. Eftirlaunaþegar sem verið hafa í félaginu a.m.k. 5 ár fyrir töku eftirlauna geta átt takmörkuð réttindi í félaginu samkvæmt nánari reglum einstakra sjóða.

Þeir sem hverfa frá störfum um stundarsakir vegna náms eða veikinda geta nýtt sér áunninn rétt við inngöngu að nýju skv. nánari reglum félagins.

Fullgildur félagsmaður getur sá orðið sem:

    • Náð hefur 16 ára að aldri.
    • Er skuldlaus við félagið eða önnur stéttarfélög.
    • Er greiðandi og hefur greitt lágmarksfélagsgjald á undangengnum 12 mánuðum sbr. 9. gr., þó með þeim undantekningum sem kveðið er á um í lögum þessum og staðfest hefur aðild sína að félaginu skv. nánari ákvæðum laga þessara.

Unglingar geta orðið félagsmenn þó þeir hafi ekki náð 16 ára aldri en njóta þó ekki kjörgengis í félaginu.

Einyrkjar á vinnumarkaði geta orðið félagsmenn með takmörkuðum réttindum skv. reglum einstakra sjóða auk þess sem þeir njóta ekki kjörgengis í félaginu. Einyrki telst sá sem starfar einn og hefur ekki aðra menn í vinnu.

4. gr. Innganga í félagið

Umsækjendur um félagsaðild skulu óska aðildar að félaginu með inntökubeiðnum eða með skilum á gjöldum til félagsins. Aðild nýrra félagsmanna að félaginu skal staðfest af skrifstofu félagsins árlega og skal félagið senda viðkomandi tilkynningu um staðfestingu á inngöngu í félagið. Geri hann ekki athugasemdir um aðild innan 30 daga frá dagsetningu tilkynningarinnar telst hann orðinn félagsmaður. Ekki er þörf sérstakrar staðfestingar ef fjarvera úr félaginu varir eigi lengur en 24 mánuði samfellt.

Um iðgjöld þeirra sem ekki kjósa að gerast félagsmenn, gilda ákvæði kjarasamninga félagsins á hverjum tíma. Sé vafi um rétt til aðildar skal stjórn úrskurða um málið. Unnt er að skjóta þeirri ákvörðun til úrskurðar trúnaðarráðs. Nýjum félögum og einyrkjum sem óska aðildar að félaginu er skylt að veita upplýsingar um starfssvið, áætlaðar tekjur og gögn frá opinberum aðilum til staðfestingar á tekjum sé þess óskað.

5. gr. Réttindi og skyldur

Réttindi félagsmanna eru:

  • Málfrelsi, tillögu- og atkvæðaréttur á fundum félagsins.
  • Allir fullgildir félagar hafa kjörgengi til trúnaðarstarfa innan félagsins, þó með þeim undantekningum sem getið er um í 3.gr.
  • Réttur til styrkja og greiðslna úr sjóðum félagsins í samræmi við reglur þeirra.
  • Réttur til að vinna þau störf sem kjarasamningar taka til.
  • Réttur til afnota af sameiginlegum eignum eftir nánari reglugerðum og reglum félagsins s.s. orlofshúsum, tjaldvögnum o.fl.
  • Réttur til aðstoðar félagsins við vanefndir atvinnurekanda á starfskjörum.

Skyldur félagsmanna eru:

  • Að hlíta lögum félagsins, fundarsköpum, fundarsamþykktum og halda í einu og öllu samninga sem félagið hefur gert.
  • Að greiða félagsgjald.

6. gr. Úrsögn

Úrsögn úr félaginu skal vera skrifleg og send skrifstofu félagsins. Enginn getur þó sagt sig úr félaginu, eftir að atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun hefur verið auglýst eða ákvörðun um vinnustöðvun hefur verið tekin af félaginu eða trúnaðarráði og þar til vinnustöðvuninni hefur verið formlega aflýst. Einnig er óheimilt að segja sig úr félaginu til þess að taka upp störf félagsmeðlima innan Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Alþýðusambands Íslands, er lagt hafa niður vinnu vegna vinnudeilu.

Fella skal burt af félagaskrá hvern þann félagsmann, er hverfur sem launþegi frá verslunar-, þjónustu- og skrifstofustörfum eða tekur að stunda atvinnu, er fellur undir starfssvið annarra stéttarfélaga.

7. gr. Brottvikning

Stjórn félagsins getur vikið úr félaginu hverjum þeim, sem að hennar áliti brýtur lög félagsins, samninga þess við vinnuveitendur eða vinnur gegn hagsmunum þess. Ákvörðun stjórnar er heimilt að vísa til úrskurðar trúnaðarráðs. Til samþykkis slíkrar brottvikningar þarf 2/3 greiddra atkvæða, hvort sem er á trúnaðarráðsfundi eða stjórnarfundi. Brottvikningu skal ekki beitt nema sakir séu miklar eða brot sem áminnt hefur verið fyrir verið ítrekað.Áður en til brottvikningar kemur skal félagsmanni gefinn kostur á að koma sjónarmiðum sínum skriflega á framfæri við stjórn.

8. gr. Heiðursfélagar - gullmerki

Stjórn félagsins er heimilt að velja heiðursfélaga og sæma menn gullmerki félagsins. Heiðursfélagar eru undanskildir félagsgjaldi.

9. gr. Félagsgjöld

Aðalfundur ákveður félagsgjaldið hverju sinni. Þó er heimilt að innheimta félagsgjaldið sem hundraðshluta af launum af sama grunni og iðgjald til Lífeyrissjóðs verzlunarmanna og kveða á um lágmarksfélagsgjald.Heimilt er með samþykki aðalfundar að ákveða að félagsgjald atvinnulausra og öryrkja renni í aðra sjóði félagsins til að tryggja réttindi þeirra úr sjóðunum.

10. gr. Stjórn

Stjórn félagsins skipa 15 aðalmenn og 3 til vara. Formaður skal kosinn til tveggja ára í senn, meðstjórnendur skulu kosnir 7 í einu til tveggja ára og ganga árlega 7 úr stjórninni á víxl. Varamenn skuli kosnir til eins árs í senn. Hverfi stjórnarmaður frá verslunar-, þjónustu- og skrifstofustörfum, eða tekur að stunda atvinnu, sem fellur undir starfssvið annarra stéttarfélaga, skal kjósa mann í hans stað við fyrsta stjórnarkjör á eftir. Stjórnin kýs sér varaformann og ritara og skiptir að öðru leyti með sér störfum.

11. gr. Hæfi stjórnarmanna

Stjórnarmenn skulu vera fjár síns ráðandi og uppfylla almenn hæfis skilyrði og mega ekki á sl. 5 árum hafa hlotið fangelsis dóm fyrir refsiverðan verknað. Stjórnarmenn mega ekki eiga meira en 5% hlut í hlutafélagi sem er í atvinnurekstri á starfssviði félagsins.

Við meðferð einstakra mála skal stjórnarmaður víkja sæti ef hann hefur hagsmuna að gæta sem kunna að fara í bága við hagsmuni félagsins.

12. gr. Störf stjórnar

Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins milli aðalfunda.

Stjórnin skal vinna að stefnumótun fyrir félagið og vinna að framgangi þeirra mála sem félagið hefur sett sér að vinna að.

Stjórnin skal sjá um að skipulag félagsins og starfsemi sé jafnan í réttu og góðu horfi og í samræmi við lög félagsins. Stjórn ber ábyrgð á fjárreiðum og eignum félagsins og tekur allar meiriháttar ákvarðanir er snúa að fjármálum. Hún skal sjá svo um að fjármál séu jafnan í góðu horfi svo sem bókhald og meðferð fjármuna.

Stjórn ákveður laun formanns og framkvæmdastjóra.

Stjórn fylgist með störfum deilda eða starfsgreina sem starfræktar eru eða kunna að verða.

Stjórnin hefur að öðru leyti vakandi áhuga fyrir því, er félaginu má verða til heilla.

Stjórn skal fela formanni / framkvæmdastjóra daglegan rekstur félagsins og ræður hann þá starfsmenn og semur um kjör þeirra.

13. gr. Stjórnarfundir

Stjórnin heldur fundi svo oft sem þurfa þykir og skal það, er á fundunum gerist skráð í sérstaka gerðarbók.Fundur er lögmætur þegar meirihluti stjórnarmanna sækir fund. Formaður sér um að boða til funda og stjórnar þeim. Formaður sér um að gerðarbók sé rituð og hún varðveitt með öruggum hætti.

Varaformaður gegnir skyldum formanns í forföllum hans.

Halda skal fund ef a.m.k. 4 stjórnarmenn krefjast þess. Afl atkvæða ræður úrslitum um afgreiðslu mála.

14. gr. Trúnaðarráð

Í félaginu skal starfa trúnaðarráð sem skal vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis stærri málefni sem upp koma í starfsemi félagsins s.s. við gerð kjarasamninga og meiriháttar framkvæmda á vegum félagsins. Auk þess skal trúnaðarráð gera annað það sem nánar er kveðið á um í lögum þessum.

Í trúnaðarráði sitja auk stjórnar 82 fulltrúar, alls 100 fulltrúar, almennir trúnaðarráðsmenn eru kosnir í allsherjaratkvæðagreiðslu til eins árs í senn. Formaður félagsins er jafnframt formaður trúnaðarráðs og boðar hann til fundar eftir því sem þurfa þykir.

15. gr. Deildir

Stjórn félagsins er heimilt að starfrækja deildir innan félagsins eftir starfsgreinum/atvinnugreinum þess. Hlutverk deildar er meðal annars að vinna að sameiginlegum hagsmunum starfsmanna í starfsgreinum/atvinnugreinum, stuðla að fræðslu þeirra og fjalla um kjaramál fyrir starfsgreinarnar/atvinnugreinarinnar. Stjórn deildar er kosin á deildarfundi. Stjórn deildar er skipuð að lágmarki 3 mönnum, sem skipta með sér verkum, varamenn skulu vera jafnmargir. Kjörtímabil stjórnar er 2 ár. Stjórn deildarinnar getur fengið fjármuni, samkvæmt nánari ákvörðun stjórnar félagsins, til ráðstöfunar til fræðslu- og menningarmála innan starfsgreinarinnar. Deild skal setja sér starfsreglur sem stjórn félagsins staðfestir.

16. gr. Trúnaðarmenn

Stjórn félagsins skipar trúnaðarmenn á vinnustöðum eða staðfestir skipun þeirra ef kosning hefur farið fram.

Trúnaðarmenn skulu starfa eftir erindisbréfi er stjórn félagsins setur þeim.

Trúnaðarmenn skulu hafa eftirlit með að lögum félagins, samþykktum og samningum sé hlýtt.

Trúnaðarmenn eru tengiliðir starfsmanna á viðkomandi vinnustað við stjórn og starfsmenn félagins. Að öðru leyti fer um starfsemi, réttindi og skyldur trúnaðarmanna að lögum og kjarasamningi félagsins.

17. gr. Samninganefnd

 Samninganefnd skal vera starfandi í félaginu. Samninganefnd kemur fram fyrir hönd félagsins við gerð kjarasamninga. Stjórn félagsins er jafnframt samninganefnd þess. Stjórn er heimilt að kalla fleiri félagsmenn til setu í samninganefnd eftir því sem þurfa þykir. Við gerð sérkjarasamninga, vinnustaða- eða fyrirtækjasamninga er samninganefnd heimilt skipa minni samninganefnd.

Kröfugerð við gerð aðalkjarasamninga skal borin upp í trúnaðarráði til samþykktar áður en hún er lögð fram við samningagerð.

18. gr. Allsherjaratkvæðagreiðsla

Allsherjaratkvæðagreiðslu skal viðhafa:

  1. Um kosningu stjórnar og reikninga og trúnaðarráðs.
  2. Um vinnustöðvun. Nú er vinnustöðvun einungis ætlað að taka til ákveðins hóps félagsmanna eða starfsmanna á tilgreindum vinnustað og er þá heimilt að taka ákvörðun um vinnustöðvun með atkvæðum þeirra sem henni er ætlað að taka til.
  3. Um miðlunartillögu ríkissáttasemjara eftir því sem við á.
  4. Þegar trúnaðarráð eða lögmætur félagsfundur samþykkir að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu í félaginu.

Við allsherjaratkvæðagreiðslu skal viðhafa almenna leynilega póstatkvæðagreiðslu meðal félagsmanna samkvæmt reglum ASÍ nema sérstakar aðstæður hamli.

19. gr. Kjörstjórn

Kjörstjórn skal skipuð þremur mönnum við kosningar í félaginu. Tveimur tilnefndum af stjórn félagsins og einum tilnefndum af Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna eða Alþýðusambandi Íslands. Tilnefna skal jafnmarga til vara. Kjörstjórn sér alfarið um framkvæmd kosninga samkvæmt reglugerð ASÍ.

20. gr. Kosning formanns, stjórnar og trúnaðarráðs

Árlega skulu 4 stjórnarmenn og trúnaðarráð kosið í listakosningu en 3 stjórnarmenn og 3 varamenn í einstaklingsbundinni kosningu. Formaður skal kosinn í einstaklingskosningu annað hvert ár.

1. Til að tryggja stöðugleika í stjórn félagsins skal Nýársfundur, sameiginlegur fundur trúnaðarráðs og trúnaðarmanna á vinnustöðum, gera tillögu um skipun í öll embætti sem í kjöri eru hverju sinni með eftirfarandi hætti:

a. Kjörstjórn skal auglýsa eftir framboðum í dagblöðum og á vefsíðu félagsins. Framboðsfrestur skal vera að minnsta kosti tvær vikur og renna út eigi síðar en tveimur vikum fyrir Nýársfund. Framboðum skal skila á skrifstofu félagsins og skulu fylgja þeim upplýsingar um nafn og kennitölu. Skrifleg meðmæli 10 félagsmanna þarf vegna framboðs til setu í stjórn. Fyrir þá sem eru að bjóða sig fram eða endurnýja framboð sitt til setu í trúnaðarráði nægir rafrænt samþykki. 

b. Fimm manna uppstillinganefnd, skipuð formanni og fjórum kosnum af trúnaðarráði og tveimur til vara, annast undirbúning Nýársfundar. Formaður félagsins skal kalla nefndina saman í fyrsta sinn eftir að hún hefur verið kosin og skiptir hún með sér verkum á fyrsta fundi. Nefndin skal gera tillögur um 4 stjórnarmenn og trúnaðarráð til framboðs í listakosningu og leggja þær fyrir Nýársfund til samþykktar. Í tillögu sinni um stjórnarsætin fjögur ber uppstillinganefnd að stilla upp fráfarandi stjórnarmönnum, ef þeir gefa kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Ef fleiri fráfarandi stjórnarmenn bjóða sig fram en sem nemur þeim fjölda sæta sem í boði eru skal nefndin gera tillögu um þá sem hafa setið styst samfellt í stjórn. Einnig skal nefndin taka tillit til jafnréttissjónarmiða við tillögu að skipun í stjórn. Komi fram tillögur á Nýársfundinum um frambjóðendur í stað þeirra sem eru tilnefndir á lista uppstillingarnefndar skal fara fram atkvæðagreiðsla á fundinum. Frambjóðendur skulu koma úr hópi þeirra sem tilkynntu framboð sitt í samræmi við auglýstan framboðsfrest kjörstjórnar.

c. Jafnframt skal á Nýársfundinum velja fulltrúa til að fylla þau sæti sem boðin eru fram í einstaklingskosningu, þ.e. þrjá aðalmenn í stjórn og þrjá til vara auk formanns annað hvert ár, úr hópi þeirra sem boðið hafa sig fram. Ef ekki berast nægilega mörg framboð eða ekki nógu margir hæfir einstaklingar bjóða sig fram að mati uppstillingarnefndar, hefur nefndin heimild til að bæta við nöfnum fyrir fundinn.

d. Atkvæðisrétt á Nýársfundinum hafa allir trúnaðarráðsmenn og trúnaðarmenn á vinnustöðum. Til að kosning á fundinum teljist lögleg þurfa a.m.k. 40% fulltrúa vera mættir á fund þegar atkvæðagreiðsla fer fram. Náist sú þátttaka ekki skal fara fram póstatkvæðagreiðsla meðal trúnaðarráðs og trúnaðarmanna. Meirihluti atkvæða í póstatkvæðagreiðslu ræður úrslitum.

2. Nái frambjóðandi til stjórnar ekki kosningu á Nýársfundi getur hann farið fram á allsherjaratkvæðagreiðslu um framboð sitt með því að afla 40 meðmælenda til viðbótar sem dreifast nokkuð jafnt frá a.m.k. 5 mismunandi vinnustöðum. Meðmæli þurfa að vera skrifleg sbr. lið 1a. Skila þarf inn meðmælendum eigi síðar en tveimur vikum eftir Nýársfund.

3. Framboðsfrestur fyrir listaframboð gegn samþykktum lista trúnaðarráðs og trúnaðarmanna fjögurra stjórnarmanna og trúnaðarráðs skal auglýstur innan tveggja vikna frá Nýársfundi og vera a.m.k. tvær vikur. Skriflegt samþykki allra þeirra sem í kjöri eru skal liggja fyrir þegar listi er fram borinn. Til þess að listi sem borinn er fram gegn lista trúnaðarráðs sé löglega fram borinn þarf skrifleg meðmæli 300 félagsmanna sbr. lið 1a.

4. Lágmarksþátttaka í allsherjaratkvæðagreiðslu skal vera 5%. Kjörstjórn úrskurðar um hvort listar eða einstaklingaframboð séu rétt fram borin og sér um framkvæmd kosninga. Ef lágmarksþáttaka í allsherjaratkvæðagreiðslu næst ekki er listi trúnaðarráðs og trúnaðarmanna sjálfkjörinn.

21. gr. Kjör á þing LÍV og ársfund ASÍ

Um kosningu fulltrúa á þing Landssambands íslenzkra verzlunarmanna, og ársfund Alþýðusambands Íslands er heimilt að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu og skal hún fara fram eftir reglugerð ASÍ þar um. Taka skal mið af 18. grein um kosningar eftir því sem við á.

22. gr. Jafnræði

Við val á félagsmönnum til trúnaðarstarfa fyrir félagið skal gætt jafnræðis milli kynja og milli starfsgreina.

23. gr. Aðalfundir

Aðalfund félagsins skal halda fyrir lok apríl ár hvert, og skal hann boðaður með auglýsingu í útvarpi og/eða dagblöðum borgarinnar með 10 daga fyrirvara. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum félagsins.

24. gr. Dagskrá aðalfundar

Dagskrá aðalfundar skal vera þannig:

  1. Kosinn fundarstjóri.
  2. Kosinn ritari.
  3. Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins undanfarið starfsár.
  4. Reikningar félagsins fyrir liðið starfsár lagðir fram til samþykktar.
  5. Skýrsla um Lífeyrissjóð verzlunarmanna.
  6. Lagabreytingar, ef tillögur liggja fyrir.
  7. Lýst kjöri stjórnar og trúnaðarráðs.
  8. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu.
  9. Ákvörðun félagsgjalds. Ákvörðun um laun stjórnarmanna.
  10. Önnur mál.

25. gr. Félagsfundir

Félagið heldur fundi svo oft sem þurfa þykir. Þó skal stjórninni skylt að boða til fundar, þegar eigi færri en 200 félagsmenn krefjast þess skriflega og skal fundurinn haldinn innan 7 daga frá því að stjórninni barst krafan í hendur. Fundur telst lögmætur, sé hann boðaður með auglýsingum í dagblöðum og/eða í útvarpi með minnst tveggja daga fyrirvara. Heimilt er að boða fund með skemmri fyrirvara vegna sérstakra ástæðna, svo sem samningagerðar eða annars samkvæmt mati stjórnarinnar. Afl atkvæða ræður úrslitum mála á fundum nema þar sem lög þessi ákveða annað. Gjörðabók skal haldin og í hana ritað ágrip af því sem fram fer á fundum félagsins.

Lögmætir félagsfundir hafa æðsta vald í öllum málefnum félagsins milli aðalfunda innan þeirra takmarka, sem lögin setja.

26. gr. Sjóðir

Félagið rekur:

    Félagssjóð, Sjúkrasjóð, Orlofssjóð, Fræðslusjóð og Vinnudeilusjóð.

Í reglugerð sjóðanna skal tilgreina hlutverk, tekjur, hvernig greiðslum úr sjóðnum er háttað og annað það er viðkemur rekstri sjóðanna.

Stjórn VR er stjórn sjóðanna en heimilt er að skipa sérstaka rekstrarstjórn um hvern sjóð fyrir sig.

Sjóðir félagsins skulu ávaxtaðir með eftirfarandi hætti:

a) í ríkisskuldabréfum, í skuldabréfum sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs,
b) með kaupum á markaðsskráðum verðbréfum,
c) á banka- eða sparisjóðsreikningum,
d) í fasteignum tengdum starfsemi og markmiðum sjóðanna,
e) á annan þann hátt er stjórn og trúnaðarráð meta tryggan.

27. gr. Reikningar

Stjórn félagsins leggur fram reikninga sem skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda og áritaðir af honum og skoðunarmönnum félagsins. Skulu þeir liggja þannig frammi á skrifstofu félagsins félagsmönnum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund.

28. gr. Lagabreytingar

Lögum þessum verður eigi breytt nema á lögmætum aðalfundi. Heimilt er þó á aðalfundi eða framhaldsaðalfundi að vísa lagabreytingum til allsherjaratkvæðagreiðslu.

Í fundarboði skal þess getið að lagabreytingar séu á dagskrá.

Lagabreytingatillögur stjórnar skulu kynntar í trúnaðarráði.

Tillögum um lagabreytingar skal skilað til félagsstjórnar eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund.

Allar lagabreytingatillögur skulu liggja frammi á skrifstofu félagsins í 7 daga fyrir aðalfund.

Til lagabreytinga þarf samþykki 2/3 greiddra atkvæða. Breytingar á lögunum koma þá fyrst til framkvæmda er miðstjórn Alþýðusambands Íslands og stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna hafa staðfest þær.

29. gr. Slit félagsins

Félaginu verður ekki slitið nema 3/4 allra félagsmanna samþykki það og þessari ákvörðun verður ekki breytt með tilvitnun til ákvæðis 28. gr.

(Lög VR, samþykkt á aðalfundi VR 28. febrúar 1955 með áorðnum breytingum 19. febrúar 1958, 23. febrúar 1959, 10. febrúar 1965, 17. janúar 1967, 25. janúar 1969, 2. júní 1975, 11. febrúar 1976, 21. mars 1978, 18. mars 1991, 25. mars 2002, 14. mars 2005, 24. apríl 2006, 31. mars 2008 og 2. apríl 2009).