Ráðning

Samkvæmt samkomulagi aðila vinnumarkaðarins er vinnuveitanda skylt að ganga frá ráðningu starfsmanns skriflega ef hann er ráðinn til lengri tíma en eins mánaðar. En í raun hefur ráðningarsamningur verið stofnaður þegar búið er að samþykkja tilboð um starf. Kjaratengd réttindi sem fylgja ráðningu, s.s. uppsagnarréttur, veikindaréttur o.þ.h., koma þó ekki til fyrr en starfsmaðurinn hefur störf.

   
 
Ráðningarsamningur er samningur milli einstaklings (starfsmanns) og fyrirtækis (atvinnurekanda) um samskipti þeirra, réttindi og skyldur. Starfmaðurinn skuldbindur sig til að vinna fyrir atvinnurekandann gegn greiðslu. [ + ]
 
Í ráðningarsamningi eða skriflegri staðfestingu ráðningar, þ.e. ráðningarbréfi, skal a.m.k. eftirfarandi koma fram: [ + ]
 
Sé starfsmanni falið að starfa í öðru landi í einn mánuð eða lengur skal hann fá skriflega staðfestingu ráðningar fyrir brottför. Auk almennra upplýsinga, eins og greint er frá hér að ofan, skal eftirfarandi koma fram: [ + ]
 
Ákvæði í ráðningarsamningum sem banna starfsmönnum að ráða sig til starfa hjá samkeppnisaðilum vinnuveitenda eru óskuldbindandi séu þau víðtækari en nauðsynlegt er til að varna samkeppni eða skerða með ósanngjörnum hætti atvinnufrelsi starfsmannsins. Hvort svo er verður að meta í hverju einstöku tilviki að teknu tilliti til allra atvika. Samkeppnisákvæði mega því ekki vera of almennt orðuð.  [ + ]
 
Hér er sýnishorn af ráðningarsamningi á vef ASÍ sem þú getur fyllt út á skjánum og prentað út. Til að opna samninginn og vinna í honum þarftu að hafa forritið Acrobat Reader.