Vinsamlegast athugið eftirfarandi:
- Leigutaki ber fulla ábyrgð á umgengni og búnaði hússins á leigutíma.
- Leigutaki skuldbindur sig til að bæta tjón sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dvelja á hans vegum í húsinu á leigutíma.
- Leigutaki þarf að sjá um að húsið sé vel þrifið við brottför, sé því ábótavant áskilur VR sér rétt til að innheimta sérstakt gjald fyrir þrif.
- Gerist leigutaki brotlegur á áðurtöldum atriðum verður sendur reikningur fyrir þrifum og/eða skemmdum og er gjaldfrestur reiknings 15 dagar. Sé reikningur ekki greiddur innan tiltekins frests verður reikningurinn sendur í innheimtu hjá lögfræðingi með tilheyrandi kostnaði.
Umgengnisreglur í orlofshúsum
- Húsið er leigt með húsgögnum, eldhúsbúnaði og öðrum lausamunum.
- Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón, sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu á leigutíma.
- Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi, ræsta húsið við brottför og sjá um að hver hlutur sé á sínum stað.
- Leigjandi skal koma til dvalar í húsinu á skiptidegi (nánar í athugasemdum).
- Leigjandi þarf að hafa með sér handklæði, sápu, viskastykki, sængurver, lök og koddaver.
- Dvalargestir eru beðnir um að forðast hávaða með bílaumferð á orlofshúsasvæðinu.
- Leigjandi skal ganga vel um staðinn og gæta þess að spilla ekki gróðri eða landi á nokkurn hátt.
- Ekki er leyfilegt að hafa með sér gæludýr í húsunum.
- Lesið vel leiðbeiningar sem festar eru upp í húsunum og skylt er að fara eftir.
Umgengnisreglur í tjaldvögnum
- Tjaldvagninn er leigður með borði og stólum fyrir fjóra, gashitara, gashellu og gaskút. (Leigutaki þarf sjálfur að sjá um að fylla gas á kútinn). Leigutaki þarf að leggja til sængur/svefnpoka og annan almennan útilegubúnað.
- Leigutaki ber ábyrgð á vagninum og búnaði hans og skuldbindur sig til að bæta það tjón sem verða kann á vagninum á meðan á leigutíma stendur. Ábyrgð leigutaka fellur ekki niður fyrr en leigusali hefur móttekið vagninn á umsömdum skilatíma.
- Leigutaki skuldbindur sig til að ganga vel um vagninn og skila honum HREINUM á umsömdum stað og tíma. Sé vagninum ekki skilað hreinum skal leigutaki greiða þrifagjald, kr. 8.000.
- Óheimilt er að aka með tjaldvagninn um vegleysur, óbrúaðar ár, vegtroðninga, snjóskafla, ís eða aðrar vegleysur. Við þær aðstæður fellur kaskótrygging vagnsins niður og hugsanlegt tjón þá að öllu leyti á ábyrgð leigutaka.
- Vagninn er kaskótryggður fyrir tjóni sem verða kann á vagninum sjálfum, sjálfsábyrgð er kr. 90.000 sem leigutaki greiðir er um stórtjón er að ræða. Leigutaki getur keypt hjá leigusala viðbótartryggingu sem nær yfir sjálfsábyrgðina.
- Ökutæki þarf að hafa viðurkenndan tengibúnað fyrir tjaldvagninn.
- Reykingar og allt dýrahald eru með öllu bannaðar í tjaldvagninum.
- Leiðbeiningar um notkun eru í tjaldvagninum og er leigutaka skylt að fara eftir þeim.
- Vagninn skal sóttur að Háholti 23, Mosfellsbæ á fimmtudögum milli kl. 13:00 og 20:00.
- Vagninum skal skilað HREINUM ásamt öllum fylgibúnaði að Háholti 23 Mosfellsbæ á miðvikudögum milli kl. 10:00 og 16:00.
- Hafi leigutaki einhverjar kvartanir fram að færa varðandi vagninn skal hann koma þeim á framfæri við leigusala við upphaf leigutíma í NEYÐARNÚMER leigusala og gefa leigusala færi á að gera úrbætur. NEYÐARNÚMER leigusala er: 856 4848.