Hvað gerir VR fyrir þig?

Félagsgjald VR er 0,7% af launum. Allir sem hafa greitt félagsgjald í einn mánuð eiga rétt á aðstoð kjaramáladeildar og sjúkradagpeningum.

Til að verða fullgildur félagsmaður og eiga rétt á öðrum þeim fríðindum sem því fylgir, þarf að hafa greitt lágmarksfélagsgjald á síðustu 12 mánuðum. Á móti félagsgjaldi þínu greiðir atvinnurekandi sem hér segir:

  • 1% í sjúkrasjóð,
  • 0,25% í orlofssjóð,
  • 0,20% í starfsmenntasjóð
  • 0,13% í endurhæfingarsjóð

Allir sem greitt hafa til félagsins síðastliðna tólf mánuði geta sótt um lykilorð inn á Mínar síður á vefnum þar sem hægt er að sjá yfirlit yfir greiðslu félagsgjalda og hvaða þjónustu viðkomandi hefur nýtt sér. Fullgildir félagsmenn sjá að auki stöðu sína í sjóðum félagsins.