Lesið úr tölunum
Hægt er að skoða niðurstöður launakönnunar VR á tvenns konar vegu. Annars vegar á netinu með því að leita að launum eftir fyrirfram skilgreindum forsendum eða skoða launatöflur, ýmist í útgefnum bæklingi eða í pdf formi á vefnum.



Niðurstöður launakönnunar VR eru birtar í nokkrum launatöflum, ýmist töflum yfir meðallaun allra svarenda, breytingar á meðallaunum eða laun eftir atvinnugreinum. Niðurstöðurnar miða við þá sem eru í 70% starfshlutfalli eða meira. Laun þeirra sem eru í 70-99% starfi hafa verið uppreiknuð miðað við 100% starf. Ástæðan fyrir því að launagreiningin nær ekki til fólks sem er í minna en 70% starfi er sú að fyrri rannsóknir benda til þess að fólk hafi hlutfallslega lægri grunnlaun eftir því sem það er í lægra starfshlutfalli.

Hvernig á að lesa úr tölunum?

Í töflunum og í niðurstöðunum eftir leit á vefnum eru gefin upp meðallaun starfsmanna. Meðaltal er ekki birt nema það samanstandi af sex eða fleiri svarendum. Auk meðaltals eru einnig birt miðgildi, 25% mörk og 75% mörk . Þær tölur gefa til kynna launadreifingu í viðkomandi hópi.

Miðgildi: helmingur svarenda er með lægri laun en miðgildið segir til um og helmingur með hærri laun.
25% mörk: fjórðungur svarenda er með þau laun sem birtast í dálkinum eða lægri og er þá 75% svarenda með hærri laun.
75% mörk: fjórðungur svarenda er með þaun laun sem tilgreind eru í dálkinum eða hærri en 75% svarenda eru með lægri laun.

Meðaltal getur verið villandi þegar fáir launþegar innan hópsins eru með miklu hærri eða lægri laun en meginþorri hópsins. Miðgildi er þá oft betri mælikvarði á laun í hópnum. Tölur um vinnutíma á viku eru einnig einungis gefnar upp í meðaltölum.

Launadreifing
Á grundvelli meðaltals, miðgildis, 25% marka og 75% marka má meta launadreifingu með eftirfarandi hætti:

Því breiðara sem bilið er á milli 25% marka, miðgildis og 75% marka, því meiri dreifing er á launum viðkomandi hóps. Því breiðara sem bilið er má segja að erfiðara sé að gera sér grein fyrir hvaða laun eru algengust í viðkomandi hópi. Aftur á móti eru launin einsleitari í hópnum eftir því sem bilið milli þessara talna er þrengra og er þá auðveldara að gera sér grein fyrir á hvaða bili algengast er að laun eru í viðkomandi hópi.

Ef meðaltal er hærra en miðgildi eru að öllum líkindum nokkrir svarendur í hópnum sem eru með töluvert hærri laun en meginþorri hópsins og hífa þannig meðaltalið upp. Ef meðaltalið er lægra en miðgildið eru að öllum líkindum nokkrir svarendur sem eru með töluvert lægri laun en meginþorri hópsins og draga þannig meðaltalið niður. Ef miðgildi og meðaltal eru á svipuðum slóðum má segja að ákveðið jafnvægi ríki í launadreifingu hópsins.