VR varasjóður

VR varasjóður sameinar réttindi í mismunandi sjóðum í VR varasjóð (sjá umsókn Athugið: greiðslur úr varasjóði eru skattskyldar og er staðgreiðsla dregin af við úttekt. Undantekning frá þessu er greiðsla að hámarki kr. 25.000 á ári fyrir líkamrækt hjá líkamsræktarstöðvum, sund eða golf.

Félagsmenn geta nýtt varasjóð vegna:

  • námsorlofs og kaupa á menntunarþjónustu (á einnig við um námsgögn barna félagsmannsins að 18 ára aldri)
  • framfærslu samhliða atvinnuleysisbótum
  • starfsloka eftir að 60 ára aldri hefur verið náð
  • heilsubrests
  • kaupa á líf-, slysa- og sjúkdómatryggingum
  • kaupa á líkamsræktar-, endurhæfingar-, sálfræði-, og læknis- og tannlæknisþjónustu
  • kaupa á hjálpartækjum s.s. gleraugum og heyrnartækjum
  • kaupa á orlofstengdri þjónustu
  • tómstunda barna að 18 ára aldri

Athugið; Ef félagsmenn hætta í VR skerðist réttindainneign um 25% eftir 24 mánuði frá því að síðustu iðgjöld bárust og síðan samsvarandi ár hvert þar til réttindi eru að fullu fyrnd.

Yfirlit yfir stöðuna

Á Mínum síðum eru birtar upplýsingar um stöðuna í varasjóðnum, greiðslur félagsgjalda, hvaða þjónustu þú hefur nýtt þér hjá félaginu og hreyfingar og stöðu í öðrum sjóðum (sækja um lykilorð).

24.10.2007 
Lagt er inn í varasjóðinn árlega, eftir aðalfund. Stjórn VR leggur fyrir aðalfund tillögu að því hversu hátt hlutfall af iðgjöldum ársins á undan renni í varasjóð og er þá tekið mið af afkomu sjóðanna. Aðalfundur ákveður endanlega hlutfallið.  [ + ]
24.10.2007 
VR varasjóður er ávaxtaður hjá Íslandsbanka og er fjárfestingarstefna hans ákveðin af stjórn VR.  [ + ]