Tæplega 10% launahækkun á milli ára

Heildarlaun félagsmanna VR hækkuðu að meðaltali um 9,9% á milli ára og grunnlaun um 9,7% samkvæmt niðurstöðum launakönnunar 2008. Á sama tímabili hækkuðu laun almennt á vinnumarkaði um 6,8% samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar og ljóst að félagsmenn VR nutu launaskriðs umfram almenna launaþróun milli áranna 2007 og 2008. Launamunur kynjanna stendur nokkurn veginn í stað, en til lengri tíma litið hefur hins vegar dregið verulega saman með kynjunum.

Niðurstöðurnar á netinu

Umfjöllunin um niðurstöðurnar á netinu er í grófum dráttum á þessa leið: