Frá árinu 2007 hefur VR boðið félagsmönnum, sem sækja um sjúkradagpeninga hjá félaginu, ráðgjöf og stuðning til að auðvelda þeim að snúa aftur til vinnu eftir veikindi eða slys. VR var fyrst stéttarfélaga til að bjóða slík úrræði en í kjarasamningum árið 2008 var þessi hugmynd tekin upp og samþykkt. Í kjölfarið var Virk starfsendurhæfingarsjóður settur á laggirnar í samstarfi við stéttarfélög og atvinnurekendur og stendur öllu launafólki nú til boða ráðgjöf og aðstoð.
Félagsmenn VR sem búa við skerta starfsgetu eða eru í þeirri stöðu að henni er ógnað vegna heilsubrests geta fengið aðstoð og ráðgjöf sem tekur mið af aðstæðum hvers og eins. Í ráðgjöfinni er mikil áhersla lögð á virkni einstaklingsins vegna þess að aðgerðarleysi og einangrun getur dregið úr batahorfum og stundum þarf lítið til að ástandið batni.
Hvert á að leita?
Ráðgjafar starfsendurhæfingarsjóðs eru félagsmönnum til aðstoðar á félagasvæði VR sem hér segir:
- Reykjavík: Í Reykjavík starfa þrír sérfræðingar hjá Sjúkrasjóði VR sem ráðgjafar á sviði starfsendurhæfingar fyrir félagsmenn í Reykjavík og nágrenni. Þeir eru á skrifstofu VR í Kringlunni 7, sími 510 1700.
- Akranes: Félagsmenn VR á Akranesi geta leitað til ráðgjafa sjúkrasjóða stéttarfélaga á Akranesi að Sunnubraut 13, sími 430 9904. Ef félagsmenn VR óska eftir því getur ráðgjafinn veitt aðstoð á skrifstofu VR að Kirkjubraut 40, sími 510 1700.
- Asturland: Á Austurlandi vinnur Virk í samstarfi við stéttarfélög á svæðinu og Starfsendurhæfingu Austurlands. Félagsmenn VR á Austurlandi geta leitað til ráðgjafa sjúkrasjóða stéttarfélaga á Austurlandi að Tjarnarbraut 39e á Egilsstöðum og Búðareyri 1 á Reyðarfirði, sími 866 2120.
- Vestmannaeyjar: Í Vestmannaeyjum er Virk í samstarfi við Starfsendurhæfingu Vestmannaeyja, Starfsorku, sem stéttarfélög og lífeyrissjóðir standa m.a. að. Félagsmenn VR í Eyjum geta leitað til ráðgjafa hjá Starfsorku í Miðstræti 11, sími 534 3965.
- Hvammstangi: Virk á í samstarfi við stéttarfélög á NV- landi og Starfsendurhæfingu Skagafjarðar. Félagsmenn VR á Norðurlandi vestra geta þannig leitað til ráðgjafa hjá Starfsendurhæfingu Skagafjarðar sem er til húsa að Faxatorgi 1 á Sauðárkróki, sími 455 6061.