Veittur er starfsmenntastyrkur eftir stigaeign, en þó aldrei meira en sem nemur helmingi af námskeiðsgjaldi. Undantekning frá meginreglu sjóðsins er að veittur er 75% styrkur vegna náms sem kennt er skv. námskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem metið er til styttingar á námi í framhaldsskóla. Þeir félagsmenn, sem hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli, geta fengið styrk allt að 75% af kostnaði sem þeir bera við íslenskunám fyrir útlendinga.
Hvernig styrkir eru veittir?
Fyrir utan starfsmenntastyrki eru einnig veittir tómstundastyrkir, að hámarki kr. 30.000, og ferðastyrkir vegna starfsnáms innan- eða utanlands ef það er ekki í boði í heimabyggð. Ekki eru veittir ferðastyrkir vegna:
- Sölu- eða vörusýninga
- Heimsókna í einstök fyrirtæki
- Ráðstefna almenns eðlis
- Starfsþjálfunar