Launainnheimta, lokun fyrirtækja og gjaldþrot

Félagsmenn VR geta leitað til félagsins vegna ýmissa mála sem m.a. varða ágreining við vinnuveitanda, ef fyrirtækið hættir skyndilega starfsemi eða fer í þrot. Á þessari síðu blaði eru upplýsingar sem mikilvægt er að þú kynnir þér, standir þú frammi fyrir vanda af því tagi sem lýst er hér að ofan. Einnig getur þú leitað til kjarasviðs VR í síma 510 1700 eða sent fyrirspurn til vr@vr.is. Sjá einnig mikilvægar upplýsingar um atvinnuleysisbætur og almennt um uppsögn og uppsagnarfrest.

 

17.10.2008 
Ef ágreiningur félagsmanns og vinnuveitanda snýst um vangreidd laun aðstoðar VR við innheimtu á slíkum launakröfum. Félagsmönnum sem leita eftir slíkri aðstoð er bent á eftirfarandi: [ + ]
17.10.2008 
Sú staða getur komið upp að fyrirtæki hætti rekstri með mjög skömmum eða engum fyrirvara. Við slíkar aðstæður geta starfsmenn átt inni laun og/eða rétt til launa á uppsagnarfresti. Mikilvægt er að fólk leiti til kjarasviðs VR sem fyrst eftir að fyrirtæki lokar vegna launakrafna sem það á inni og haldi til haga launaseðlum, ráðningarsamningi og öðrum gögnum sem sýna fram á ráðningarsamband. [ + ]
17.10.2008 
Gjaldþrot geta fylgt í kjölfar lokunar fyrirtækja en gjaldþrot þýðir í raun að fyrirtækið getur ekki lengur staðið við skuldbindingar sínar. Starfsfólki sem á launakröfu á hendur gjaldþrota fyrirtæki er bent á eftirfarandi: [ + ]