Fyrirtæki ársins 2009

Kraftvélar  og Microsoft Íslandi eru Fyrirtæki ársins 2009  í könnun VR, það fyrra í hópi stærri fyrirtækja en það síðara í hópi minni fyrirtækja. Íslandspóstur og Atlantsolía bættu sig mest á milli ára og eru hástökkvarar ársins 2009 .

Þátttaka í könnun VR á fyrirtæki ársins hefur aldrei verið meiri en í ár, ríflega tuttugu þúsund starfsmenn fyrirtækja á almennum vinnumarkaði fengu senda spurningalista og svöruðu tæplega tólf þúsund þeirra eða 54% samanborið við 42% á síðasta ári. Könnunin var gerð m.v. stöðuna um áramót og í janúar síðastliðnum. Hér má sjá hvernig umfjöllun um niðurstöðurnar er á vefnum.