Styrkir úr starfsmenntasjóðum
Félagsmenn VR geta sótt um fræðslustyrk í starfsmenntasjóði sem stofnaðir voru á grundvelli kjarasamninga VR og vinnuveitenda árið 2000. Markmið þeirra er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks og stuðla að auknu framboði af námi og námsefni.
Skilyrði fyrir styrk

Veittur er starfsmenntastyrkur eftir stigaeign, en þó aldrei meira en sem nemur helmingi af námskeiðsgjaldi. Undantekning frá meginreglu sjóðsins er að veittur er 75% styrkur vegna náms sem kennt er skv. námskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, sem metið er til styttingar á námi í framhaldsskóla. Þeir félagsmenn, sem hafa annað tungumál en íslensku að móðurmáli, geta fengið styrk allt að 75% af kostnaði sem þeir bera við íslenskunám fyrir útlendinga.

Hvernig styrkir eru veittir?

Fyrir utan starfsmenntastyrki eru einnig veittir tómstundastyrkir, að hámarki kr. 30.000, og ferðastyrkir vegna starfsnáms innan- eða utanlands ef það er ekki í boði í heimabyggð. Ekki eru veittir ferðastyrkir vegna:

  • Sölu- eða vörusýninga
  • Heimsókna í einstök fyrirtæki
  • Ráðstefna almenns eðlis
  • Starfsþjálfunar
Starfsmenntasjóðir

Umsókn um fræðslustyrk, smelltu hér til að opna umsóknareyðublaðið

Greitt er út á föstudögum og skal skila inn umsóknum eigi síðar en á miðvikudeginum á undan. Greiðslukvittun þarf að fylgja og má ekki vera eldri en 12 mánaða. Athugið að mikilvægt er að öll gögnin berist samtímis. Umsækjandi verður sjálfur að fylla út og undirrita umsóknareyðblað. Ekki er tekið við umsóknum sem aðrir hafa fyllt út nema með skriflegu umboði umsækjanda.