Seta í nefndum og stjórnum
Á félagsfundi VR í nóvember 2008 var lagt til að mótaðar yrði siðareglur og reglur um setu fulltrúa VR í stjórnum félaga og fyrirtækja sem VR á aðkomu að. Auglýst var eftir áhugasömum félagsmönnum til að koma að því starfi. Í kjölfarið var svo myndaður málefnahópur til að vinna að tillögum. Sá hópur lagði fram drög að siðareglum sem og verklagsreglum um setu í nefndum og stjórnum sm samþykkt voru í stjórn (sjá siðareglur og greinargerð vegna þeirra).
Verklagsreglur vegna setu í nefndum og stjórnum á vegum VR
  1. VR félagar sem eru fullgildir félagar skulu hafa jafna möguleika til setu í nefndum og stjórnum sem VR tilnefnir fulltrúa í.
  2. VR skal kynna allar nefndir á vefsíðu sinni þar sem félagar geta kynnt sér starfsemi nefndanna.
  3. VR félagar geta gefið kost á sér í þær nefndir sem þeir hafa þekkingu eða áhuga á.
  4. VR skal gæta jafnræðis og dreifa nefndarsetu á félaga.
  5. VR stjórn skal skipa stjórnarmenn/félagsmenn í stjórn Lífeyrissjóðs Verslunarmanna, Landsamband Íslenskra Verslunarmanna, miðstjórn Alþýðusambands Íslands og fastanefndir VR þ.e sjúkrasjóðs- og orlofsnefnd.
  6. VR félagar sem gegna nefndarstarfi á vegum félagsins eru ábyrgir fyrir skilum á fundargerð til félagsins eftir hvern nefndarfund.
  7. VR nefndarmaður ætti alla jafnan ekki að sitja lengur en 8 ár samfellt í sömu nefnd.
  8.  VR valnefnd skal skipuð árlega í kjölfar aðalfundar VR. Valnefnd er skipuð einum starfsmanni á skrifstofu VR, einum trúnaðarráðsmanni, einum almennum félagsmanni og tveimur stjórnarmönnum.


Samþykkt í stjórn 14. apríl 2010


Greinagerð með reglugerð um verklagsreglur vegna setu í nefndum og stjórnum á vegum VR

VR félagar eru um 28.000 og eru verklagsreglur þessar hugsaðar til að opna félagið og gefa félagsmönnum tækifæri til að koma að störfum þess. VR hefur verið mikið gagnrýnt fyrir að vera lokað hinum almenna félaga og var því ráðist í gerð þessara verklagsreglna til að tryggja gagnsæi og lýðræði. Mikil vakning hefur verið að undanförnu um málefni félagsins og er þetta viðleitni til að nýta krafta þeirra sem vilja vinna félaginu heilt.

Fullgildir félagsmenn geta óskað eftir setu í nefndum og ráðum. Félagsmaður er fullgildur skv. 3. gr: laga VR ef hann hefur náð 16 ára aldri, er skuldlaus við félagið eða önnur stéttarfélög, er greiðandi og hefur greitt lágmarksfélagsgjald á undangengnum 12 mánuðum, með þó undantekningu skv. 9 gr. laganna.

Upplýsingar um nefndir og ráð sem VR á fulltrúa í eru ekki mjög aðgengilegar og eflaust gera margir sér ekki grein fyrir hversu mikið starf er unnið á vegum félagsins. Setja skal upp gagnagrunn yfir allar þær nefndir sem VR þarf að manna, hlutverk þeirra, starfstíma og fundartíma  á heimasíðu félagsins. Einnig þarf að koma upp gagnagrunni fyrir félagsmenn, þar sem þeir geta sent inn skráningu um sig, menntun, sérþekkingu, áhugasvið og langanir til starfa að ákveðnum málefnum fyrir VR. Félagsmenn geta óskað eftir við stjórn að komið verði á fót skammtímanefndum um ákveðin málefni er taka þarf á.

Stjórn VR skal skipa stjórnarmenn/félagsmenn í stjórn Lífeyrissjóð Verslunarmanna, Landsamband Íslenskra Verslunarmanna, miðstjórn Alþýðusambands Íslands og fastanefndir VR sem eru sjúkrasjóðs- og orlofsnefnd.

Ávallt skal gæta þess við skipan í nefndir og ráð að lögum félagsins sé fyllt, s.br. 22. gr. um jafnræði kynjanna og starfsgreina. Með því að gefa félögum kost á að sækja um að komast í nefndir er unnt að nýta fjölbreyttan bakgrunn félagsmanna til hagsbóta fyrir félagið. Þeir félagar sem gefa kost á sér í nefndir og ráð á vegum félagsins þurfa að vera meðvitaðir um mikilvægi upplýsingastreymis frá nefndarstarfi sínu. Þeim er skilt að skila fundargerð/punktum frá hverjum fundi til tengiliðs á samskiptasviði og skal þeim haldið til haga á skrifstofu VR. Æskilegt er að félagsmaður sitji ekki lengur en átta ár í hverri þeirri nefnd sem hann hefur valið eða óskað er eftir að hann sitji í fyrir hönd félagsins.

Til að velja félagsmenn/stjórnarmenn í nefndir og ráð, skal skipa fimm manna valnefnd til að velja félaga úr hópi umsækjenda. Ráðið skal skipað einum starfsmanni á skrifstofu VR, einum trúnaðarráðsmanni, einum félagsmanni og tveimur stjórnarmönnum. Stjórn VR skal skipa í fyrstu valnefndina. Starfsmanni VR í valnefnd er falið það hlutverk að tilkynna félagsmanni að hann hafi verið valinn í viðkomandi nefnd og senda frekari upplýsingar m.a. meðnefndarmenn og hvaðan þeir koma. Nýr nefndarmaður skal fá sendar síðustu fundargerðir/punkta frá viðkomandi nefnd, til undirbúnings og kynningar.

Allir sem starfa fyrir félagið í stjórnum, nefndum og ráðum verða að vera þess minnugir að þeir starfa í nafni félagsins og skulu fylgja siðareglum þess.