Á annað hundrað áhugasamir félagsmenn sátu Stefnuþing VR laugardaginn 24. apríl sl. Þingið bar yfirskriftina Lýðræði - ábyrgð - þátttaka og var tilgangur þess að efla lýðræði innan félagsins og tryggja að sem flestir komi að mótun stefnu þess í opnu og gegnsæju ferli.
Vinna við endurmat á stefnu VR hófst í desember 2009. Stjórn VR og stýrihópur stefnumótunarverkefnisins tóku í framhaldinu ákvörðun um að boða til þessa stefnuþings en fyrirkomulag þess byggðist á margumræddum Þjóðfundi sem haldinn var í nóvember 2009. Til að tryggja sem mesta breidd í störfum þingsins var tekið tilviljunarkennt úrtak úr félagaskrá VR og viðkomandi boðið að taka þátt í verkefninu.
Niðurstöður stefnuþingsins verða mikilvægt framlag til þeirrar umræðu sem nú stendur yfir innan stjórnar VR um framtíðarhlutverk og áherslur félagsins.