Tvær deildir eru starfandi innan VR, á Asturlandi og í Vestmannaeyjum. Hlutverk deildar er meðal annars að vinna að sameiginlegum hagsmunum starfsmanna í starfsgreinum / atvinnugreinum, stuðla að fræðslu þeirra og fjalla um kjaramál (sjá 14. gr. laga VR).
Deild VR á Austurlandi
Í maí árið 2008 var tillaga um sameiningu við VR samþykkt á aðalfundi Verslunarmannafélags Austurlands og í kjölfarið var stofnuð sérstök deild VR á Austurlandi. Formaður deildarinnar var kosin Kristín M. Björnsdóttir sem áður gegndi formennsku í Verslunarmannafélagi Austurlands (sjá frétt).
Deild VR í Vestmannaeyjum
Í október 2007 var tillaga um sameiningu við VR samþykkt á aðalfundi Verslunarmannafélags Vestmannaeyja og var jafnframt samþykkt að stofna sérstaka deild VR í Vestmannaeyjum. Formaður deildarinnar var kosin Guðrún Erlingsdóttir sem áður var formaður Verslunarmannafélags Vestmannaeyja (sjá frétt).