Veikindaréttur
Ef starfsmaður veikist og getur ekki sótt vinnu skal hann tilkynna það yfirboðara sínum. Vinnuveitandi ákveður hvort læknisvottorðs skal krafist og greiðir hann þá fyrir það. Félagsmenn VR ávinna sér veikindarétt sem hér segir:
  • Á fyrsta ári, tveir dagar fyrir hvern unninn mánuð.  
  • Eftir 1 ár í starfi hjá sama vinnuveitanda, tveir mánuðir á hverju 12 mánaða tímabili.  
  • Eftir 5 ár í starfi hjá sama vinnuveitanda, fjórir mánuðir á hverju 12 mánaða tímabili.
  • Eftir 10 ár í starfi hjá sama vinnuveitanda, sex mánuðir á hverju 12 mánaða tímabili.
Veikindi í orlofi

Veikist starfsmaður í orlofi innanlands það alvarlega að hann geti ekki notið orlofsins skal hann á fyrsta degi tilkynna það á sannanlegan hátt til vinnuveitanda.

Sama gildir ef starfsmaður veikist í landi inn EES-svæðisins það alvarlega að það leiði til sjúkrahúsvistar. Fullnægi starfsmaður tilkynningaskyldu, og standi veikindin lengur en 3 sólarhringa innanlands eða 6 sólarhringa innan EES-svæðisins, á hann rétt á uppbótarorlofi jafnlangan tíma og veikindin sannanlega vörðu.

   
 
Í vinnuslysa- eða atvinnusjúkdómstilfellum sem orsakast við vinnuna eða af henni, eða flutnings til og frá vinnustað greiðir atvinnurekandi laun fyrir dagvinnu í allt að 3 mánuði til viðbótar áunnum veikindarétti.  [ + ]
 
Samkvæmt kjarasamningi VR og SA frá 2008 er atvinnurekenda skylt að tryggja launafólk það sem samn­ingurinn þessi tekur til, fyrir dauða, varanlegri læknisfræðilegri örorku og/eða tíma­bundinni örorku af völdum slyss við vinnu eða á eðlilegri leið frá heimili til vinnustaðar og frá vinnustað til heimilis. Ef starfsmaður hefur vegna starfs síns viðlegustað utan heimilis, kemur viðlegustaður í stað heimilis, en tryggingin tekur þá einnig til eðlilegra ferða milli heimilis og viðlegustaðar. [ + ]