Jafnrétti á vinnumarkaði

Munur á heildarlaunum kynjanna samkvæmt launakönnun VR 2009 er 14,7% en var 16,7% samkvæmt könnuninni árið 2008 . Frá árinu 2000 hefur launamunurinn dregist verulega saman eða um 28% - árið 2000 var munur á heildarlaunum karla og kvenna 20,4% (sjá umfjöllun).

Sömu þróun má sjá þegar félagsgjöld eru skoðuð. Launamunurinn samkvæmt þessum tölum hefur því dregist saman um rúmlega fjórðung. Ekki er hægt að taka út áhrif starfshlutfalls, vinnutíma eða annarra þátta við greiningu á félagsgjöldum.

Þróun á launamun kynjanna frá árinu 1989

Launamunur kynjanna er ein af helstu lykiltölum VR og birtir félagið línurit yfir þennan mun frá upphafi árs 1989. Um það leyti sem launamunur kynjanna innan VR var í hámarki fór af stað mikil umræða, meðal annars í kjölfar auglýsingar VR sem sýndi konur og karl í ráðningarviðtali en karlinn fór fram á 30% hærri laun en konurnar.

Um svipað leyti hóf VR að greiða félagsmönnum 80% laun í fæðingarorlofi og skömmu síðar komu markaðslaunin til framkvæmda.

VR gerði jafnréttisstefnu árið 2000 sem hefur hefur verið endurskoðuð árlega. Auk þess hefur verið samþykkt sérstök jafnréttisstefna fyrir skrifstofu VR.