Uppsagnarfrestur er sem hér segir:
- Á fyrstu þremur mánuðum í starfi (reynslutími), 1 vika.
- Á fjórða til sjötta mánuði í starfi, 1 mánuður, uppsögn skal vera um mánaðamót.
- Eftir sex mánaða starf, 3 mánuðir, uppsögn skal vera um mánaðamót.
- Eftir 10 ára starf hjá sama fyrirtæki öðlast starfsmaður við;
55 ára aldur 4 mánaða uppsagnarfrest, uppsögn skal vera um mánaðamót.
60 ára aldur - 5 mánaða uppsagnarfrest, uppsögn skal vera um mánaðamót.
63 ára aldur - 6 mánaða uppsagnarfrest, uppsögn skal vera um mánaðamót.
Starfsmenn sem hafa öðlast fjögurra til sex mánaða uppsagnarfrest skv. kjarasamningi, geta sagt starfi sínu lausu með þriggja mánaða fyrirvara en að öðru leyti er uppsagnarfrestur gagnkvæmur. Skylt er að vinna lögbundinn uppsagnarfrest, nema um annað sé sérstaklega samið. Allar uppsagnir skulu vera skriflegar og gerðar á sama tungumáli og ráðningarsamningur starfsmanns.
Þinn réttur
Það er mikilvægt að þú þekkir rétt þinn þegar kemur að uppsögn, hvort sem þú segir upp eða færð uppsagnarbréf frá vinnuveitanda. Kjarasvið VR hefur tekið saman ítarlegar upplýsingar um þinn rétt.