Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, VR, var stofnað 27. janúar árið 1891 af launþegum og atvinnurekendum í verslunarstétt en hefur verið hreint launþegafélag frá árinu 1955. Th. Thorsteinsson var fyrsti formaður félagsins en núverandi formaður er Kristinn Örn Jóhannesson sem tók við árið 2009.

Á síðustu árum hefur VR sameinast nokkrum verslunarmannafélögum (sjá um félagasvæðið).

 [ + ]
 
Verslunarmannafélag Akraness var stofnað í tengslum við stofnun LÍV árið 1957. Fljótlega dró úr félagsstarfi og árið 1964 var félagið að mestu lagst í dá. Þá boðaði Sverrir Hermannsson, þáverandi formaður LÍV, til aðalfundar í félaginu 21. febrúar og þar var félagið endureist. Það starfaði eftir það af talsverðum þrótti og annast samningagerð fyrir félagsmenn sína. Sigurjón Ari Sigurjónsson var fyrsti formaður félagsins eftir að það var endurreist. [ + ]
 
Verslunarmannafélag Hafnarfjarðar var stofnað 28. júní 1928, ekki síst fyrir hvatningu og áeggjan félaga í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur, VR. Fyrsti formaður félagsins var Jón Mathiesen. Fyrstu árin var starfsemi félagsins afar lítil og var enginn fundur skráður frá lokum árs 1931 til ársins 1937.  [ + ]
 
Verzlunarmannafélag Vestmannaeyja var stofnað 22. júní 1944 og gekk í Alþýðusamband Íslands í október sama ár. Síðasti fundur félagsins var haldinn árið 1950 og var félagið svo lagt niður í þáverandi mynd. Rúmum áratug síðar, eða þann 1. júní 1962, var Verslunarmannafélag Vestmannaeyja svo endurreist fyrir tilstuðlan Landssambands íslenzkra verzlunarmanna. Fyrsti formaður þess var Stefán Björnsson.  [ + ]
 
Verslunarmannafélag Húnvetninga var stofnað þann 8. júní 1958 en uppúr 1970 fór að bera á klofningi innan félagsins og voru verslunarmenn á Hvammstanga hættir að taka þátt í félagsstarfinu. Þann 23. júlí 1973 var Verslunarmannafélag Vestur-Húnvetninga, VVH, stofnað. Í forystu heimamanna um stofnun félagsins var Sigurður Björnsson sem var fyrsti formaður þess.  [ + ]
 
Verslunarmannafélag Reyðarfjarðar- og Egilsstaðakauptúns var stofnað 5. maí 1960. Björn Eysteinsson var fyrsti formaður félagsins. Snemma á áttunda áratug síðustu aldar fór fólk í öðrum þéttbýliskjörnum á Austurlandi að ganga í félagið og var nafni þess breytt í Verslunarmannafélag Austurlands árið 1972.  [ + ]