Jákvæðni er yfirskrift nýrrar auglýsingaherferðar VR. Mikilvægi þess að horfa jákvæðum augum fram á veginn hefur sjaldan eða aldrei verið meira en nú. Aukið atvinnuleysi, gjaldþrot og fjarhagsleg óvissa dregur úr baráttuþreki fólks, vilja þeirra til verka og bjartsýni sem aftur hefur bein áhrif á framleiðni fyrirtækja og uppbyggingu atvinnulífsins.
Jákvæðni á vinnustað hefur áhrif inn á heimilin og jákvæðni heima fyrir skilar sér inn á vinnustaðinn. Þess vegna vitnum við í Einar Benediktsson þegar við segjum Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt.
[ + ]