7.4.2009 
Um VR
VR var stofnað sem Verzlunarmannafélag Reykjavíkur 1891 af launþegum og atvinnurekendum í verslunarstétt og varð hreint launþegafélag 28. febrúar 1955. Árið 2006 var nafni félagsins breytt í VR. Tilgangur VR er að vinna að bættum kjörum og auknum réttindum félagsmanna.

Félagsmenn VR

Fullgildir félagsmenn VR eru ríflega tuttugu þúsund talsins og starfa við meira en eitthundrað starfsgreinar. Um 60% prósent félagsmanna eru konur. Meðalaldur félagsmanna er tæplega 40 ár.

Samkvæmt niðurstöðum launakönnunar VR árið 2005 eru um 20% félagsmanna háskólagengnir, fjórðungur hefur lokið viðbótarnámi eftir framhaldsskóla, án þess þó að ljúka háskólanámi.

Meira en þriðjungur eða 37% setur sig í flokk með stjórnendum og sérfræðingum, 25% telja sig til sérhæfðs starfsfólks og tækna, 11% vinna við skrifstofustörf, 19% starfa við sölu og afgreiðslu og 8% vinna við gæslu-, lager- og framleiðslustörf.

24% félagsmanna vinna hjá fyrirtækjum í sérhæfðri þjónustu, s.s. fjármálafyrirtækjum og tölvufyrirtækjum, 22% vinna í smásölufyrirtækjum og 18% heildsölufyrirtækjum. Um þriðjungur félagsmanna vinnur hjá fyrirtækjum þar sem vinna 100 eða fleiri starfsmenn en 17% þar sem vinna færri en 10.

Nánar um VR