VR var stofnað sem Verzlunarmannafélag Reykjavíkur 1891 af launþegum og atvinnurekendum í verslunarstétt og varð hreint launþegafélag 28. febrúar 1955. Árið 2006 var nafni félagsins breytt í VR. Tilgangur VR er að vinna að bættum kjörum og auknum réttindum félagsmanna. [ + ]
 
Nafni VR var breytt árið 2006 og voru einkunnarorð félagsins og lógó tekin til endurskoðunar af því tilefni. Einkunnarorð VR eru Virðing, réttlæti sem eru mikilvægustu hugtökin í öllum mannlegum samskiptum, hvort sem er á vinnumarkaði eða utan hans. [ + ]
 

Formaður VR er Kristinn Örn Jóhannesson, kristinn@vr.is, kosinn árið 2009. Kristinn Örn  nam flugrekstrarfræði við St. Francis College, Brooklyn, N.Y og starfaði áður hjá Icelandair, Air Atlanta, Nýherja, EJS og Primera Air. Kristinn er fæddur árið 1966.

  • Kristinn Örn Jóhannesson, litmynd, 1.500 x 1.930 px, jpg, 460 kb.
  • Kristinn Örn Jóhannesson, svart-hvít mynd, 1.500 x 1.930 px, jpg, 340 kb.
 [ + ]
 

Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður LÍV og varaforseti ASÍFormaður Landssambands íslenzkra verzlunarmanna (LÍV) er Ingibjörg R. Guðmundsdóttir en hún er jafnframt varaforseti ASÍ. Ingibjörg hefur starfað í verkalýðshreyfingunni í áratugi, verið formaður LÍV frá árinu 1989 og varaforseti ASÍ alls í 13 ár. Hún er eina konan sem kjörin hefur verið formaður landssambands innan  ASÍ.

  • Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, litmynd, 1.500 x 1900 px, jpg, 640kb.