VR - virðing, réttlæti

Mynd, lógó VREfnt var til samkeppni um nýtt nafn á Verzlunarmannafélag Reykjavíkur síðla árs 2005. Skipuð var sérstök dómnefnd sem valdi að halda skammstöfuninni, VR. Þessi tillaga var lögð fyrir aðalfund sem haldinn var 24. apríl 2006 og samþykkt.

Af hverju nýtt nafn?

Nafn Verzlunarmannafélags Reykjavíkur þótti ekki lengur nægilega lýsandi fyrir félagið og því var efnt til samkeppni um nýtt nafn í lok árs 2005 og upphafi árs 2006. Um 1.000 tillögur bárust í samkeppnina og var rúmur þriðjungur þeirra ýmiss konar útfærslur á skammstöfuninni VR. Það var mat dómnefndar að í þeirri lausn fælist ákveðin samfella milli fortíðar og framtíðar félagsins undir nafni sem allir félagsmenn geta fylkt sér undir.

Nýja nafnið er skammstöfunin VR en henni hefur verið fengið nýtt inntak; Virðing og réttlæti, tvö mikilvægustu verkefnin á sviði félagsins. Dómnefnd skipuðu Gunnar Páll Pálsson, formaður VR, Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður samskipta- og þróunarsviðs VR auk rithöfundanna Gerðar Kristnýjar og Andra Snæs Magnasonar.

Hvers vegna virðing? Hvers vegna réttlæti?

Vinnumarkaðurinn á Íslandi er gjörbreyttur frá því sem áður var og á eftir að breytast meira. Grundvallarréttindi hafa verið tryggð og í stað miðstýrðra tilskipana eru starfsmenn frjálsari að því sækjast eftir lífsgæðum eins og þeir skilgreina þau. Atvinnurekendur sækjast á sama tíma eftir þeim sveigjanleika sem hentar þeirra starfsemi.

Samfara auknu frelsi, meiri hraða og fjölbreyttari tækifærum eykst þörfin fyrir að standa fast á grunnatriðum lífsgæða, andlegra sem veraldlegra. Góður vilji er ekki nóg heldur þarf samstillt átak margra. Þetta er markmið stéttarfélagsins VR. Í nafninu VR kristallast tvö mikilvægustu hugtökin í öllum mannlegum samskiptum: Virðing og réttlæti.

Virðing
Virðing er ómissandi hluti af lífsgæðum fólks. Virðing á vinnumarkaði er krafan um að að starfsmaður sé metinn sem manneskja en ekki aðeins sem "tæki" til að ná ákveðnum markmiðum. Allir eiga kröfu á að uppskera eftir verðleikum sínum og njóta velferðar í nútíma samfélagi. Markmiðið er einnig að efla sjálfsvirðingu fólks til að hver og einn hafi kjark og þor til að nýta tækifæri sín til hins ýtrasta og geti þannig blómstrað bæði í starfi og í einkalífi.

Réttlæti
Réttlæti er að að sönnu víðtækt hugtak en á vinnumarkaði felst réttlætið í því að allir fari að leikreglum sem sátt ríkir um, ákvarðanir séu teknar á skýran og gegnsæjan hátt og hver fái það sem honum ber. Stéttarfélög voru í upphafi stofnuð til að berjast gegn ranglæti og enn þann dag í dag er réttlæti annað og meira en lög og réttur. Réttlæti á að umvefja allt samfélagið og birtast í hegðun fólks og aðgerðum fyrirtækja og stofnana í stóru og smáu á hverjum degi.

Hlutverk VR er að stuðla að og efla virðingu á markvissan hátt en standa jafnframt vörð um réttlæti á öllum sviðum fyrir hönd félagsmanna sinna og auðvelda þeim þannig að efla sinn hag í ánægjulegu starfi.