Um siðareglur VR
Á félagsfundi VR í nóvember 2008 var lagt til að mótaðar yrði siðareglur og reglur um setu fulltrúa VR í stjórnum félaga og fyrirtækja sem VR á aðkomu að. Auglýst var eftir áhugasömum félagsmönnum til að koma að því starfi og var í kjölfarið  myndaður málefnahópur til að vinna að tillögum. Sá hópur lagði fram drög að siðareglum sem og verklagsreglum um setu í nefndum og stjórnum sem síðan voru samþykkt í stjórn (sjá verklagsreglur um setu í nefndum og stjórnum og greinargerð vegna þeirra).
Siðareglur VR

Stjórn VR
Fulltrúar VR í stjórnum og nefndum

1. gr. Virðing

Við sinnum störfum okkar með hagsmuni félagsmanna VR að leiðarljósi og stöndum vörð um heiður félagsins.

2. gr. Fordæmi

Við heitum því að stuðla að framgangi þessara reglna og styðja við þær með því að ganga  á undan með góðu fordæmi

3. gr. Heiðarleiki

Við gegnum störfum okkar af trúmennsku og heiðarleika. Við greinum frá öllum persónulegum hagsmunum sem geta haft óeðlileg áhrif á störf okkar í þágu félagsins.

4. gr. Ábyrgð

Við vinnum störf okkar af samviskusemi og erum ávallt reiðubúin að axla ábyrgð á verkum okkar. Ef við sætum opinberri rannsókn sem skaðað geta hagsmuni félagsins munum við víkja þar til málið er til lykta leitt.

5. gr. Gagnsæi

Við höldum í heiðri grundvallarreglur góðrar stjórnsýslu í störfum okkar. Við eigum ætíð að geta rökstutt ákvarðanir okkar og látið lögmæt og málefnaleg sjónarmið ráða för.

6. gr. Hlutlægni

Við gætum þess að sýna hlutlægni og tökum ákvarðanir á grundvelli verðleika, þ.m.t. þegar við komum opinberlega fram, gerum samninga eða tökum afstöðu til einstakra mála. Við látum skyldleika, vensl, vinskap eða eigin hagsmuni aldrei ráða ákvörðun okkar í störfum fyrir VR.

7. gr. Réttlæti

Við höfum jafnrétti að leiðarljósi og vinnum gegn fordómum og mismunun, t.d.vegna kyns, þjóðernis, trúarbragða, aldurs, kynferðis, skoðana, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis eða stöðu að öðru leyti.

Samþykkt í stjórn 14. apríl 2010.


II.

  1. Siðanefnd hefur það hlutverk með höndum að úrskurða um kærur sem henni berast um brot á siðareglum VR.
  2. Kærur til siðanefndar skulu vera skriflegar og berast formanni siðanefndar VR. Mikilvægt er að nákvæmlega sé tilgreint hvers kæran nær til og við hvaða grein siðareglnanna meint brot á við.
  3. Formaður kallar aðra fulltrúa siðanefndar til fundar þegar kæra berst, ásamt því að láta þeim í té þau gögn sem borist hafa.
  4. Siðanefnd tekur afstöðu til þess hvort einhver fulltrúa siðanefndar sé vanhæfur til þess að úrskurða í máli sem nefndinni berst.
  5. Við upphaf málsmeðferðar kannar siðanefnd hvort þeim kröfum, sem siðareglur gera til kærenda, hafi verið fullnægt.  Sé svo ekki skal kæru vísað frá og kæranda skýrt skriflega frá orsökum frávísunar.
  6. Siðanefnd skal bjóða báðum aðilum máls að skýra mál sitt á fundum nefndarinnar. Hún skal einnig óska eftir skriflegri greinargerð beggja aðilja.
  7. Siðanefnd ákveður hverjir aðrir skulu koma fyrir nefndina, og hvaða viðbótargagna skuli aflað.
  8. Kæranda er heimilt að draga kæru sína til baka hvenær sem er áður en siðanefnd hefur undirritað úrskurð sinn.
  9. Siðanefnd kveður upp rökstuddan, skriflegan úrskurð.
  10. Siðanefnd ritar fullskipuð undir úrskurði. Sératkvæði skulu birt með úrskurði meirihlutans.
  11. Siðanefnd fer með gögn mála, önnur en kæru og úrskurð nefndarinnar, sem trúnaðarmál og fjallar ekki um einstök mál opinberlega.
  12. Formaður siðanefndar er talsmaður hennar út á við.