Síðustu ár hefur VR birt niðurstöður í könnuninni Fyrirtæki ársins á tvo mismunandi vegu. Í fyrsta lagi eru heildareinkunnir fyrirtækja birtar á kvarðanum 1 til 5 þar sem fimm er hæsta einkunn. Einkunnir fyrir lykilþættina hafa hins vegar verið birtar sem raðeinkunnir. Raðeinkunnirnar ná frá 1 upp í 100 og sýna hvar fyrirtæki stendur á viðkomandi þætti í samanburði við hin fyrirtækin. Ef tiltekið fyrirtæki er með raðeinkunnina 63 á þættinum launakjör eru 62% fyrirtækja með lægri einkunn á þeim þætti en 37% fyrirtækja með hærri einkunn. Lág raðeinkunn þar ekki að þýða að fyrirtækið sé mjög með lága einkunn á kvarðanum 1 - 5.
Raðeinkunnir byggja alltaf á heildarlista fyrirtækja, þ.e. raðeinkunnir stærri fyrirtækja byggja á heildarlistanum. Er það til að sýna stöðuna hjá fyrirtækinu miðað við stöðuna almennt samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar. Það gefur heildstæðari mynd en ella.
Árið 2009 birtum við í fyrsta skipti einkunnir fyrir lykilþættina á kvarðanum 1 til 5 og verða allar einkunnir héðan í frá birtar á þann hátt. Ekki er hægt að breyta raðeinkunnum fyrir fyrri ár og því birtum við töflurnar fyrir fyrirtækin á tvo vegu: