VR býður fullgildum félagsmönnum afslátt í flug og pakkaferðir Icelandair og Iceland Express. Hjá Icelandair er afslátturinn kr. 8.000 en kr. 10.000 hjá Iceland Express. Afslátturinn er í formi orlofsmiða sem hægt er að nálgast hjá VR. Orlofsmiðinn kostar kr. 20.000 hjá Iceland Express og kr. 22.000 hjá Icelandair og jafngilda þeir kr. 30.000 greiðslu upp í ferð á vegum flugfélaganna.
Hvar er hægt að kaupa orlofsmiða?
Orlofsmiðarnir eru seldir á skrifstofu VR í Reykjavík og er hægt að koma á skrifstofuna í Kringlunni 7 á opnunartíma kl. 8:30 – 16:30. Miðarnir eru EKKI seldir á heimasíðu VR. Félagsmenn utan höfuðborgarsvæðisins, vinsamlega hafið samband við Þjónustuver VR í síma 510 1700. Greiða verður fyrir orlofsmiðann um leið og hann er keyptur.
Gildistími
Afslátturinn gildir í ferðir sem keyptar eru til og með 12. júlí 2012. Miðinn gildir ekki fyrir flug eða ferðir sem þegar hafa verið keyptar hjá flugfélögunum. Hver félagsmaður getur keypt tvo orlofsmiða á hverju 12 mánaða tímabili.
Hvað svo?
Til að nota afsláttinn, þarf að bóka ferð á heimasíðum flugfélaganna. Á orlofsmiðanum kemur fram veflykill sem þarf að slá inn í bókunina til að fá afsláttinn. Veflykillinn er sleginn inn í lok bókunarferilsins og dregst þá afslátturinn frá. Heildarverð með afslætti kemur þá fram. Athugið að orlofsmiða frá Icelandair er ekki hægt að nota til greiðslu á sköttum og gjöldum flugfargjalds.
VR varasjóður
Til að nota inneign í VR varasjóði til að greiða fyrir miðann þarf að ganga frá greiðslu orlofsmiðans fyrst og skila svo inn umsókn og kvittun til VR.