Ánægja með launakjörin minnkar, 48% eru mjög eða frekar ánægð með launakjörin samanborið við 51% í fyrra.
Ekki er marktækur munur á milli kynja eða eftir öðrum bakgrunnsþáttum nema atvinnugreinum. Þeir sem eru í verslun og þjónustu eru ánægðastir með sín launakjör en mest er um óánægða í sérhæfðri þjónustu og fjármálastarfsemi og iðnaði.