Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
19 3069 Fyrirtaekiarsins2020 Email Markpostur Unnin 02@2X

Almennar fréttir - 13.01.2020

Ætlar þitt fyrirtæki að vera með?

Könnun VR á Fyrirtæki ársins 2020 hefst í febrúar. Könnunin snýst ekki aðeins um að velja fyrirtæki ársins heldur veita niðurstöðurnar víðtæka og áreiðanlega mynd af stöðu mála í innra umhverfi fyrirtækisins, er því frábært vinnutæki til umbótastarfs.
Nánar á vr.is/2020.

Allir geta tekið þátt!

Könnun VR á Fyrirtæki ársins 2020 verður send til allra félagsmanna VR. En til að gefa sem réttasta mynd af stöðu fyrirtækisins er mikilvægt að allt starfsfólk fyrirtækisins fái tækifæri til að taka þátt í könnuninni. Forsenda þess að fyrirtækið komi til greina í vali á Fyrirtæki ársins 2020 er að allir starfsmenn hafi tækifæri til þátttöku.

Helmingsafsláttur af kostnaði við þátttöku

Fyrirtæki bera ekki kostnað vegna þátttöku starfsmanna sem eru félagsmenn í VR en greiða fyrir starfsfólk sem er utan félagsins. VR hefur ákveðið að niðurgreiða þátttökukostnað fyrirtækja í könnuninni 2020 um helming. Nánar um kostnað hér.

Fimm fyrirtæki valin í hverjum flokki

Í maí 2020 verður tilkynnt hvaða fyrirtæki hafa orðið fyrir valinu sem Fyrirtæki ársins. Valið á Fyrirtæki ársins byggir á niðurstöðum í níu lykilþáttum og eru fimm fyrirtæki valin í hverjum flokki af þremur stærðarflokkum. Sjá nánar um framkvæmdina og um lykilþættina.

Viðurkenningar eru veittar í þessum flokkum:

  • Minni fyrirtæki - Færri en 30 starfsmenn
  • Meðalstór fyrirtæki - 30 til 69 starfsmenn
  • Stærri fyrirtæki - 70 starfsmenn eða fleiri

Fyrirmyndarfyrirtækin 45

Fyrirtæki sem eru í fimmtán efstu sætunum í hverjum flokki fá titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki, alls 45 talsins, og eru fyrirtækin í fimm efstu sætunum Fyrirtæki ársins.

Ætlar þitt fyrirtæki að vera með? Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.