Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
mynd104.JPG

Almennar fréttir - 15.08.2019

Breytingar á stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna

Á fundi stjórnar VR í gær, miðvikudaginn 14. ágúst 2019, var samþykkt tillaga um nýja stjórnarmenn VR í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna til bráðabirgða. Þá var einnig samþykkt að hefja þegar í stað faglegt umsóknarferli framtíðarstjórnarmanna félagsins hjá lífeyrissjóðnum.

Tillagan sem borin var upp og samþykkt með 14 atkvæðum gegn 1 var um eftirfarandi aðila til setu í stjórn lífeyrissjóðsins og að hafið yrði strax faglegt umsóknarferli um framtíðarstjórn sem tæki við af neðangreindum aðilum við fyrsta hentugleik:

Aðalmenn
Bjarni Þór Sigurðsson
Guðrún Johnsen
Helga Ingólfsdóttir
Stefán Sveinbjörnsson

Varamenn
Sigríður Lovísa Jónsdóttir
Björn Kristjánsson
Selma Árnadóttir
Oddur Gunnar Jónsson