Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
25487359_10155185648672205_3781372028352461408_o.jpg

Almennar fréttir - 18.12.2017

Dagatal VR 2018

VR hefur gefið út dagatal fyrir árið 2018. Dagatalið er ætlað félagsmönnum VR en auk hefðbundinna rauðra daga eru einnig merktar inn á dagatalið mikilvægar dagsetningar fyrir félagsmenn, eins og hvenær opnað verður fyrir bókanir orlofshúsa, hvenær aðalfundur VR er haldinn og hvenær niðurstöður launakönnunar verða birtar.

Dagatölin liggja frammi á skrifstofum VR í Reykjavík, á Akranesi, Egilsstöðum, Selfossi og í Vestmannaeyjum á meðan birgðir endast.