Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Ingrid1

Almennar fréttir - 08.04.2020

Fyrirlestur Ingridar Kuhlmann aðgengilegur til 14. apríl

Hádegisfyrirlestur Ingdridar Kuhlman „Hversu full er fatan þín?“, sem sýndur var í hádeginu í dag, verður aðgengilegur til miðnættis þann 14. apríl næstkomandi.

Í fyrirlestrinum verður lögð áhersla á góðar leiðir til að fylla á myndrænu fötuna sem geymir tilfinningar okkar og við tökum með okkur hvert sem við förum. Fatan fyllist af jákvæðum samskiptum eins og klappi á bakið, jákvæðum hugsunum, þakklæti eða fallegum orðum í okkar garð. Fatan okkar tæmist af neikvæðum samskiptum, neikvæðum hugsunum eða ómaklegri gagnrýni annarra.

Ingrid Kuhlman er með MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði og hefur mikla reynslu af þjálfun einstaklinga og hópa í aðferðum jákvæðrar sálfræði.

Smelltu hér til að horfa!