Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
rvk-3.jpg

Almennar fréttir - 29.04.2018

Hefur leigan þín hækkað óeðlilega?

VR auglýsir um þessar mundir eftir dæmum og gögnum frá fólki sem hefur orðið fyrir óeðlilegri hækkun húsaleigu. Fullum trúnaði er heitið.

Á undanförnum misserum hefur heyrst af ótrúlegum dæmum um svívirðilega hækkun á húsaleigu fólks sem getur ekki hönd fyrir höfuð borið á vægðarlausum leigumarkaði. Við hjá VR viljum berjast af alefli gegn þessari vá og biðlum því til landsmanna um að senda okkur í trúnaði gögn með dæmum um slíkar hækkanir (hægt er að senda á netfangið vr@vr.is). Dæmi eru um leigufélög sem skirrast ekki við að demba tugprósenta hækkunum leigugjalds á varnarlausar fjölskyldur sem að öðrum kosti lenda á götunni. Við hjá VR viljum vera rödd þessa fólks sem flest er í þeirri stöðu að geta ekki tjáð sig um málið af ótta við að missa húsnæði fjölskyldunnar.