Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
kosningar2018.jpg

Almennar fréttir - 13.03.2018

Kosningu til stjórnar VR lýkur í dag, 13. mars

Um kl. 8:30 í morgun, 13. mars, höfðu 3.093 félagsmenn VR kosið í allsherjaratkvæðagreiðslu til stjórnar VR fyrir kjörtímabilið 2018 til 2020 en hún hófst kl. 9:00 að morgni 6. mars. Atkvæðagreiðslunni lýkur kl. 12:00 á hádegi í dag, þriðjudaginn 13. mars.

Við hvetjum félagsmenn til að kynna sér frambjóðendur og nýta atkvæðisrétt sinn. Atkvæðagreiðsla er rafræn, sjá hér aðgang að atkvæðaseðli og nánari upplýsingar um frambjóðendur.