Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_utilif-4.jpg

Almennar fréttir - 16.01.2018

Kynningarfundur - Diplómanám í viðskiptafræði og verslunarstjórnun

Nú er að fara af stað nýtt diplómanám í viðskiptafræði og verslunarstjórnun sem byggir á ítarlegri greiningu á starfi verslunarstjóra. Námið er samstarfsverkefni Háskólans á Bifröst, Háskólans í Reykjavík og starfsmenntasjóðanna SVS og SV.

Kynningarfundur verður haldinn hjá VR í Húsi verslunarinnar 17. janúar kl. 14:00
Smelltu hér til að skrá þig! 
Þeir sem ekki komast á fyrirlesturinn geta horft á hann í gegnum streymi, smelltu hér til að skrá þig á streymið.

Í tilefni þessa sóknartækifæris fyrir verslunarstjóra hefur stjórn SVS ákveðið að niðurgreiða skólagjöld fyrir nemendur í fyrsta hópnum um 50.000 kr. á hverja önn fyrir félagsmenn VR og LÍV. Þar að auki geta einstaklingar og fyrirtæki sótt um sameiginlegan styrk og nýtt rétt sinn í Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks. Nánari upplýsingar um styrki og umsóknir er að finna á starfsmennt.is.

Umsóknarfrestur rennur út þann 22. janúar næstkomandi.

Láttu þetta tækifæri ekki framhjá þér fara! Tilvalin leið fyrir verslunarstjóra til þess að nýta reynslu sína og þekkingu til þess að bæta við sig námi.

Nánari upplýsingar um námið má finna hér.