Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
vr_jolaball_10122016-1111.jpg

Almennar fréttir - 19.11.2019

Miðasala á jólaball VR hefst í dag

Jólaball VR verður haldið laugardaginn 7. desember nk. kl. 13.00 í Flóa í Hörpu. Helga Möller og Grétar Örvarsson leika jólalög og dansað verður í kringum jólatréð.

Miðasala fer fram á orlofsvef VR á Mínum síðum. Miðinn á ballið kostar 500 kr., en frítt er inn fyrir börn 15 ára og yngri. Nauðsynlegt er að tilgreina fjölda barna þegar miðar eru keyptir. Öll börn fá glaðning frá jólasveininum. Bílastæðahús er undir Hörpu og þaðan er beint aðgengi inn í húsið. Frítt verður í bílastæðin fyrir félagsmenn VR á meðan á jólaballinu stendur.