Athugið að þessi frétt er meira en ársgömul
Ragnar1

Almennar fréttir - 04.05.2020

Rafrænt spjall við formann VR

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fer yfir allt það helsta í málefnum VR í rafrænu spjalli með félagsmönnum sem verður sent út í beinni útsendingu. Þá gefst einnig tækifæri til þess að senda inn fyrirspurnir og mun Ragnar Þór sitja fyrir svörum og svara eftir því sem tími vinnst til.

Félagsmenn geta sent inn fyrirspurnir til Ragnars Þórs á meðan á spjalli stendur, en einnig er hægt að senda inn spurningar fyrir útsendingu með því að fara inn á www.menti.com og slá inn kóðann 21808. Þar geta félagsmenn skrifað spurningar sínar, skoðað aðrar spurningar og einnig líkað við þær spurningar sem þeir myndu vilja sjá svarað.

Spjallið verður sent út rafrænt í beinni útsendingu þann 6. maí kl. 12:00-13:00